Síminn hf. - Uppgjör 4. ársfjórðungs 2024 verður birt eftir lokun markaðar 18. febrúar 2025
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2024 þann 18. febrúar næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 19. febrúar 2025 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.
Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: . Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á og verður þeim svarað í lok fundarins.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi .
