A1121L Sjova-Almennar tryggingar hf

Aðalfundur Sjóvá 12. mars 2021 - Endanlegar tillögur og dagskrá. Upplýsingar um skráningu og rafræna þátttöku

Aðalfundur Sjóvá 12. mars 2021 - Endanlegar tillögur og dagskrá. Upplýsingar um skráningu og rafræna þátttöku

Samkvæmt samþykktum Sjóvá-Almennra trygginga hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir aðalfund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins.

Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests sem var þann 2. mars sl. og er dagskrá aðalfundar því óbreytt frá fyrri tilkynningu félagsins 18. febrúar 2021. Fyrir aðalfundinum liggja því óbreyttar tillögur og ályktanir frá stjórn félagsins sbr. meðfylgjandi viðhengi.

Líkt og getið var um í aðalfundarboði þann 18. febrúar sl. þá verður aðalfundur Sjóvár haldinn í fundarsölum H og I á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn 12. mars kl. 15:00. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað, í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða taka þátt í fundinum með rafrænum hætti, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu eigi síðar en kl. 17:00 þann 11. mars, eða degi fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma. Með innskráningu skal fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á. Þeir sem skrá sig til fundar með rafrænum hætti fá aðgang að streymi af fundinum, geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun eingöngu fara fram í gegnum aðalfundarkerfi Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins á fundarstað eða taka þátt með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður smáforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM á tölvu eða spjaldtölvu.

Í ljósi samkomutakmarkana eru þeir hluthafar sem hyggjast mæta á fundinn á fundarstað beðnir um að láta vita um mætingu á fundinn við fyrsta tækifæri með því að senda skilaboð á svo hægt sé að áætla þann fjölda sem mætir.

Nánari leiðbeiningar um skráningu á aðalfundinn og rafræna þátttöku og atkvæðagreiðslu er hægt að finna á vefsvæði félagsins . Þar er jafnframt að finna önnur fundargögn og frekari upplýsingar tengdar aðalfundinum.

Viðhengi



EN
09/03/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Sjova-Almennar tryggingar hf

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2025 (SFCR)

Sjóvá: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2025 (SFCR) Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu fyrir árið 2025. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016. Skýrslunni er m.a. ætlað að veita almenningi og markaðsaðilum upplýsingar um fjárhagslegan styrk, áhættu, eignir og skuldir félagsins og talnaupplýsingar. Skýrslan er meðfylgjandi og má einnig finna á eftirfarandi síðu: 

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 - leiðrétting

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 - leiðrétting Í viðhengi er að finna leiðrétt skjal með helstu niðurstöðum frá aðalfundinum. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 - leiðrétting

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 - leiðrétting Í viðhengi er að finna leiðrétt skjal með helstu niðurstöðum frá aðalfundinum. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 12. mars 2026 Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. fór fram í dag, fimmtudaginn 12. mars 2026. Í viðhengi er að finna helstu niðurstöður frá aðalfundinum. Kosið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórn hefur skipt með sér verkum. Formaður stjórnar er Björgólfur Jóhannsson og Hildur Árnadóttir varaformaður. Í stjórn félagsins voru kjörin:Björgólfur Jóhannsson                Guðmundur Örn Gunnarsson        Hildur Árnadóttir                        Ingi Jóhann Guðmundsson                Ingunn Agnes Kro                         Eftirtalin voru kjöri...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2025 er komin út

Sjóvá: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2025 er komin út Árs- og sjálfbærniskýrsla Sjóvá-Almennar tryggingar hf. fyrir árið 2025 hefur verið birt í tengslum við ársuppgjör félagsins. Árs- og sjálfbærniskýrslan er á rafrænu formi og hægt að nálgast hana á eftirfarandi vefsvæði  Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða .

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch