Sjóvá birtir ársuppgjör 2019 fimmtudaginn 13. febrúar, fjárfestafundur sama dag
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir afkomu fjórða ársfjórðungs og ársins 2019 fimmtudaginn 13. febrúar nk., eftir lokun markaða.
Fjárfestafundur/streymi fyrir markaðsaðila 13. febrúar kl. 16:15
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund 13. febrúar kl. 16.15 þar sem Hermann Björnsson forstjóri mun kynna afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni. Fundurinn fer fram í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð.
Fundinum verður vefvarpað beint á slóðinni .
Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.