A1121L Sjova-Almennar tryggingar hf

Sjóvá: Endanleg dagskrá, tillögur og fyrirkomulag hluthafafundar 25. nóvember

Sjóvá: Endanleg dagskrá, tillögur og fyrirkomulag hluthafafundar 25. nóvember

Hluthafafundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. verður haldinn miðvikudaginn 25. nóvember 2020 kl. 10:00 í fundarsölum F og G á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Meðfylgjandi er endanleg dagskrá hluthafafundarins og þær tillögur sem lagðar verða fyrir fundinn. Dagskráin og tillagan er óbreytt frá því boðað var til fundarins þann 3. nóvember sl. þar sem engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests sem var þann 15. nóvember 2020.

Fyrirkomulag hluthafafundar:

Fundurinn verður í fundarsölum F og G á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Öllum ákvörðunum heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir á grundvelli sóttvarnarlaga verður að sjálfsögðu framfylgt. Fundinum verður jafnframt streymt á slóðinni . Ekki verður boðið upp á möguleika á rafrænni þátttöku í fundinum.

Í ljósi samkomutakmarkana býðst hluthöfum að veita umboð til umboðsmanns um þátttöku á fundinum með fyrirmælum um hvernig atkvæði skuli greidd um þá tillögu sem til afgreiðslu er. Hefur Sjóvá fengið Grétar Dór Sigurðsson hrl. hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur til að vera umboðsmann fyrir þá hluthafa sem það vilja. Hægt er að sækja viðeigandi umboðseyðublað á vefsvæði Sjóvá og senda rafrænt á . Nánari upplýsingar um umboð og skil þeirra er að finna á fyrrgreindu umboðseyðublaði á vefsvæði Sjóvá.

Hluthöfum gefst jafnframt kostur á að mæta á fundinn, en í ljósi gildandi samkomutakmarkana eru hluthafar þá beðnir um að láta vita um mætingu á fundinn á netfangið eigi síðar en í lok dags 23. nóvember nk. svo hægt sé að áætla fjölda fundarmanna og gera viðeigandi ráðstafanir.

Að öðru leyti er vísað til fyrra fundarboðs og upplýsinga um hluthafafundinn sem nálgast má á vefsvæði félagins

Viðhengi



EN
20/11/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Sjova-Almennar tryggingar hf

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2025

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2025 479 m.kr. tap og samsett hlutfall 91,1% á fyrstu sex mánuðum ársins Annar ársfjórðungur 2025 Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 690 m.kr. (2F 2024: 150 m.kr. tap)Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 439 m.kr. (2F 2024: 317 m.kr. tap)Hagnaður tímabilsins 60 m.kr. (2F 2024: 434 m.kr. tap)Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -0,1% (2F 2024: 0,3%)Samsett hlutfall 92,1% (2F 2024: 101,8%)    Fyrstu sex mánuðir ársins 2025 og horfur Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 1.511 m.kr. (6M 2024: 92 m.kr.)Tap af fjárfe...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2025 verður birt 17. júlí – kynning...

Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2025 verður birt 17. júlí – kynningarfundur sama dag kl. 16:15 Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 17. júlí nk. Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 17. júlí nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Uppfært fjárhagsdagatal 2025

Sjóvá: Uppfært fjárhagsdagatal 2025 Fjárhagsdagatali Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur verið breytt og uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025 fært til 23. október. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. stefnir nú að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum: 2. fjórðungur 2025                          17. júlí 20253. fjórðungur 2025                          23. október 2025Ársuppgjör 2025                             12. febrúar 2026 Aðalfundur verður haldinn á neðangreindri dagsetningu: Aðalfundur 2026                    ...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Breytingar á viðskiptavakt

Sjóvá: Breytingar á viðskiptavakt Sjóvá – Almennar tryggingar hf. hefur gert samning við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagins, sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. júlí 2025. Samhliða hefur verið sagt upp samningi við Arion banka hf. og tekur uppsögnin gildi í lok dags 30. júní 2025. Tilgangur viðskiptavaktar er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í kauphöll Nasdaq Iceland í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist á hlutabréfum félagsins og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hæt...

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 1. ársfjórðungs 2025

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 1. ársfjórðungs 2025 Helstu niðurstöður úr árshlutauppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2025:  Fyrsti ársfjórðungur 2025 og horfur Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 821 m.kr. (1F 2024: 242 m.kr.)Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 1.126 m.kr. (1F 2024: 363 m.kr. hagnaður)Tap tímabilsins 540 m.kr. (1F 2024: 421 m.kr. hagnaður)Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -1,0% (1F 2024: 1,2%)Samsett hlutfall 90,2% (1F 2024: 97,0%) Horfur fyrir árið 2025 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2025 og t...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch