A1121L Sjova-Almennar tryggingar hf

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2023

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2023

566 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 97,6% á fyrstu sex mánuðum ársins

Annar ársfjórðungur 2023

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 479 m.kr. (2F 2022: 87 m.kr.)
  • Tap af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 416 m.kr. (Tap 2F 2022: 260 m.kr.)
  • Tap tímabilsins 69 m.kr. (Tap 2F 2022: 123 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -0,2% (2F 2022: -0,4%)
  • Samsett hlutfall 93,8% (2F 2022: 98,7%)

Fyrstu sex mánuðir ársins 2023 og horfur

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 368 m.kr. (6M 2022: 451 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 396 m.kr. (6M 2022: 620 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 566 m.kr. (6M 2022: 936 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 1,4% (6M 2022: 1,3%)
  • Samsett hlutfall 97,6% (6M 2022: 96,6%)
  • Horfur fyrir árið 2023 gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.000-1.300 m.kr. (var 1.400-1.900 m. kr.) og samsett hlutfall 96-97% (var 94-96%).
  • Horfur til næstu 12 mánaða gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.100-1.600 m.kr. (var 1.400-1.900 m. kr.) og samsett hlutfall 95-97% (var 94-96%)

Hermann Björnsson, forstjóri:

Hagnaður Sjóvár fyrir skatta nam 84 m. kr. á öðrum ársfjórðungi og var samsett hlutfall 93,8%.

Það er ánægjulegt að vátryggingastarfsemin skili góðri afkomu í kjölfar krefjandi fyrsta ársfjórðungs en hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta nam 479 m.kr. Tekjur af vátryggingasamningum jukust um 10,1% miðað við sama fjórðung í fyrra þegar leiðrétt er fyrir því að Sjóvá ráðstafaði rúmlega 600 m. kr. til viðskiptavina í formi endurgreiðslu í maí í fyrra.

Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir fjármagnsliði og skatta á öðrum ársfjórðungi var neikvæð um 171 m.kr. sem skýrist að miklu leyti af töluverðri lækkun skráðra hlutabréfa á fjórðungnum. Allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri afkomu að undanskildum skráðum hlutabréfum þar sem afkoman var neikvæð um 735 m.kr. Ávöxtun skráðra hlutabréfa var -5,9%, ríkisskuldabréfa 1,5% og ávöxtun safnsins alls -0,2% á fjórðungnum sem er ásættanlegt í ljósi markaðsaðstæðna en undir væntingum um ávöxtun til lengri tíma.

Í upphafi júlímánaðar sl. var tilkynnt um kaup danska heilbrigðisfyrirtækisins Coloplast á Kerecis og er um að ræða eina stærstu fyrirtækjasölu í sögu íslensks viðskiptalífs. Sjóvá hefur verið meðal hluthafa Kerecis frá 2019 og er stolt af því að hafa stutt þetta ótrúlega nýsköpunarfyrirtæki á vegferð sinni. Sjóvá mun bókfæra u.þ.b. 1.150 m.kr. hagnað á þriðja ársfjórðungi 2023 vegna sölunnar en nákvæmt söluvirði kann að taka breytingum, m.a. vegna mögulegrar viðbótargreiðslu tengdri rekstrarárangri Kerecis og gengi bandaríkjadollar þegar salan fer fram.

Hagnaður Sjóvár fyrir skatta á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 815 m.kr. Þar af nam hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 368 m.kr. og samsett hlutfall 97,6%. Þá var hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir fjármagnsliði og skatta 627 m.kr.

Af starfseminni eru margar ánægjulegar fréttir úr fjórðungnum. Á landsþingi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í maí sl. var Sjóvá veitt viðurkenning félagsins, Áttavitann, fyrir stuðning sinn við starfsemi Landsbjargar. Til viðbótar við áralangan stuðning veitti Sjóvá Landsbjörg styrk árið 2021 upp á 142,5 milljónir til kaupa á þremur nýjum björgunarskipum og eru tvö fyrstu skipin, Þór og Sigurvin, komin til sinna heimahafna í Vestmannaeyjum og Siglufirði. Þriðja skipið er væntanlegt til landsins í sumar og verður með heimahöfn í Reykjavík.

Við erum afar stolt af samstarfi okkar og Landsbjargar. Áttavitinn er viðurkenning á því góða samstarfi og er það okkur mikill heiður að fá að taka þátt í að gera starf Landsbjargar eins gott og mögulegt er.

Þá náði Sjóvá góðum árangri í UFS sjálfbærnimati Reitunar í júlí þegar félagið fékk einkunnina B2 og 78 stig af 100 mögulegum sem telst góð einkunn. Sjóvá mælist yfir meðaltali í umhverfis- og félagsþáttum og er á pari við meðaltal í stjórnarháttum í samanburði við önnur félög sem metin hafa verið. Matið gerir grein fyrir því hvernig fyrirtæki standa frammi fyrir áhættum sem snúa að umhverfis- og félagsþáttum og stjórnarháttum. Sjóvá hefur lengi keppst við að vera framarlega á sviði sjálfbærni og því er afar ánægjulegt að fá þessa góða viðurkenningu. Nýlega var sjálfbærninefnd Sjóvár sett á laggirnar sem mun starfa sem undirnefnd stjórnar og stuðla að aukinni áherslu Sjóvár á sjálfbærni.

Í ágúst hlaut Sjóvá einnig, ásamt öðrum, viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum sem veitt er af Stjórnvísi, Viðskiptaráði, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi.

Þróun tækniinnviða og stafrænna þjónustuleiða félagsins hefur skilað sér í hærra þjónustustigi og aukinni ánægju viðskiptavina, á sama tíma og hlutfall rekstrarkostnaðar félagsins lækkar. Sjóvá mælist með ánægðustu viðskiptavini tryggingafélaga, er með þéttasta útibúanet og fær á sama tíma hæstu einkunn tryggingafélaga þegar kemur að upplifun viðskiptavina á stafrænum þjónustulausnum tryggingafélaganna. Sjóvá er jafnframt það tryggingafélag sem flestir Íslendingar myndu velja væru þeir að taka ákvörðun um það í dag samkvæmt niðurstöðum mælinga EMC markaðsrannsókna og Prósent.

Sem dæmi um framfarir í tækniframboði og nýtingu viðskiptavina má nefna rafræna tilkynningu tjóna. Í nóvember 2021 skráðu 35% viðskiptavina tjón sín rafrænt. Nú er þetta hlutfall komið í 79% og á sama tíma er tjónaafgreiðslan skilvirkari.

Þegar horfur fyrir 2023 eru metnar verður að taka tillit til stórra brunatjóna sem hent hafa okkar viðskiptavini það sem af er ári. En einnig verður að líta til þess að undirliggjandi rekstur á fyrstu 6 mánuðum er sterkur með jákvæðum vexti iðgjalda. Með þetta í huga teljum við rétt að breyta horfum sem áður voru að afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2023 voru áætlaðar 1.400-1.900 m.kr. og samsett hlutfall á bilinu 94-96% þannig að afkoma af vátryggingasamningum verði u.þ.b. 1.000-1.300 m.kr. og samsett hlutfall um 96%-97%. Horfur til næstu 12 mánaða gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%. Gangi þessar breyttu horfur eftir verður að telja þá niðurstöðu mjög vel við unandi.

Kynningarfundur 28. ágúst kl. 16:15

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 28. ágúst kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni .

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Nánari upplýsingar

Meðfylgjandi er fréttatilkynning, samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna annars ársfjórðungs 2023.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða .



Viðhengi



EN
28/08/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Sjova-Almennar tryggingar hf

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2025

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2025 479 m.kr. tap og samsett hlutfall 91,1% á fyrstu sex mánuðum ársins Annar ársfjórðungur 2025 Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 690 m.kr. (2F 2024: 150 m.kr. tap)Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 439 m.kr. (2F 2024: 317 m.kr. tap)Hagnaður tímabilsins 60 m.kr. (2F 2024: 434 m.kr. tap)Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -0,1% (2F 2024: 0,3%)Samsett hlutfall 92,1% (2F 2024: 101,8%)    Fyrstu sex mánuðir ársins 2025 og horfur Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 1.511 m.kr. (6M 2024: 92 m.kr.)Tap af fjárfe...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2025 verður birt 17. júlí – kynning...

Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2025 verður birt 17. júlí – kynningarfundur sama dag kl. 16:15 Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 17. júlí nk. Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 17. júlí nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Uppfært fjárhagsdagatal 2025

Sjóvá: Uppfært fjárhagsdagatal 2025 Fjárhagsdagatali Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur verið breytt og uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025 fært til 23. október. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. stefnir nú að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum: 2. fjórðungur 2025                          17. júlí 20253. fjórðungur 2025                          23. október 2025Ársuppgjör 2025                             12. febrúar 2026 Aðalfundur verður haldinn á neðangreindri dagsetningu: Aðalfundur 2026                    ...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Breytingar á viðskiptavakt

Sjóvá: Breytingar á viðskiptavakt Sjóvá – Almennar tryggingar hf. hefur gert samning við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum félagins, sem skráð eru í kauphöll Nasdaq Iceland. Samningurinn tekur gildi frá og með 1. júlí 2025. Samhliða hefur verið sagt upp samningi við Arion banka hf. og tekur uppsögnin gildi í lok dags 30. júní 2025. Tilgangur viðskiptavaktar er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í kauphöll Nasdaq Iceland í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist á hlutabréfum félagsins og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hæt...

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 1. ársfjórðungs 2025

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 1. ársfjórðungs 2025 Helstu niðurstöður úr árshlutauppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2025:  Fyrsti ársfjórðungur 2025 og horfur Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 821 m.kr. (1F 2024: 242 m.kr.)Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 1.126 m.kr. (1F 2024: 363 m.kr. hagnaður)Tap tímabilsins 540 m.kr. (1F 2024: 421 m.kr. hagnaður)Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -1,0% (1F 2024: 1,2%)Samsett hlutfall 90,2% (1F 2024: 97,0%) Horfur fyrir árið 2025 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2025 og t...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch