Sjóvá: Ársuppgjör 2022 verður birt 9. febrúar - kynningarfundur sama dag kl. 16:15
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir ársuppgjör fyrir árið 2022 og fjórða ársfjórðung 2022 eftir lokun markaða fimmtudaginn 9. febrúar nk.
Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 9. febrúar nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni .
Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fyrir fundinn eða á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir, í síma 844-2136 eða á netfangið
