A1121L Sjova-Almennar tryggingar hf

Sjóvá: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Sjóvá: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf., sem haldinn var 11. mars 2022, veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 121.552.150 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir 10% af útgefnu hlutafé félagsins þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárlækkunar sem samþykkt var á sama aðalfundi. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. Heimildin gildir í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins og dótturfélaga þess fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Félagið á í dag 30.139.880 eigin hluti og munu endurkaupin að hámarki nema 9.364.569 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,25% af útgefnu hlutafé félagsins. Þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 250 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 30. júní 2023 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 726.688 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í júní 2022. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Markaðsviðskipti Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. eiga 30.139.880 hluti, eða sem nemur 2,48% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið 



EN
18/07/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Sjova-Almennar tryggingar hf

 PRESS RELEASE

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 1. ársfjórðungs 2025

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 1. ársfjórðungs 2025 Helstu niðurstöður úr árshlutauppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2025:  Fyrsti ársfjórðungur 2025 og horfur Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 821 m.kr. (1F 2024: 242 m.kr.)Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 1.126 m.kr. (1F 2024: 363 m.kr. hagnaður)Tap tímabilsins 540 m.kr. (1F 2024: 421 m.kr. hagnaður)Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -1,0% (1F 2024: 1,2%)Samsett hlutfall 90,2% (1F 2024: 97,0%) Horfur fyrir árið 2025 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2025 og t...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 verður birt 15. maí – kynninga...

Sjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 verður birt 15. maí – kynningarfundur sama dag kl. 16:15 Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 15. maí nk. Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 15. maí nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni ve...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2024 (SFCR)

Sjóvá: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2024 (SFCR) Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu fyrir árið 2024. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016. Skýrslunni er m.a. ætlað að veita almenningi og markaðsaðilum upplýsingar um fjárhagslegan styrk, áhættu, eignir og skuldir félagsins og talnaupplýsingar. Skýrslan er meðfylgjandi og má einnig finna á eftirfarandi síðu:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Uppfært fjárhagsdagatal 2025

Sjóvá: Uppfært fjárhagsdagatal 2025 Sjóvá-Almennar tryggingar hf. stefnir að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum: 1. fjórðungur 2025                          15. maí 20252. fjórðungur 2025                          17. júlí 20253. fjórðungur 2025                          30. október 2025Ársuppgjör 2025                             12. febrúar 2026 Aðalfundur verður haldinn á neðangreindri dagsetningu: Aðalfundur 2026                            12. mars 2026 Dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar. Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorst...

 PRESS RELEASE

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 13. mars 2025

Sjóvá: Niðurstöður aðalfundar 13. mars 2025 Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. fór fram í dag, fimmtudaginn 13. mars 2024. Í viðhengi er að finna helstu niðurstöður frá aðalfundinum. Kosið var í stjórn félagsins fyrir næsta starfsár. Stjórn hefur skipt með sér verkum. Formaður stjórnar er Björgólfur Jóhannsson og Hildur Árnadóttir varaformaður. Í stjórn félagsins voru kjörin:Björgólfur Jóhannsson                Guðmundur Örn Gunnarsson        Hildur Árnadóttir                        Ingi Jóhann Guðmundsson                Ingunn Agnes Kro                         Eftirtalin voru kj...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch