Sjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2020 verður birt fimmtudaginn 14. maí - rafrænn kynningarfundur sama dag
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs ársins 2020 fimmtudaginn 14. maí nk., eftir lokun markaða.
Rafrænn fjárfestafundur 14. maí kl. 16:15 (ATH: aðeins hægt að fylgjast með fundinum í gegnum streymi)
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið að fylgjast með beinni útsendingu af fundinum þar sem Hermann Björnsson forstjóri mun kynna afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi. Í ljósi aðstæðna verður fundurinn ekki opinn fjárfestum og markaðsaðilum en vilji aðilar bera upp spurningar sem tengjast uppgjörinu má senda þær á netfangið á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok fundarins.
Fundinum verður vefvarpað beint á slóðinni
Kynning á uppgjörinu verður aðgengileg á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningarfundurinn hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.