Sjóvá: Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2021 verður birt 28. október - kynningarfundur sama dag kl. 16:15
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birta uppgjör þriðja ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða fimmtudaginn 28. október nk.
Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og vefstreymi
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15. Þar mun Hermann Björnsson forstjóri kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt beint á slóðinni . Vilji aðilar sem horfa á kynninguna í streymi bera upp spurningar má senda þær á netfangið fyrir fundinn eða á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.
Nánari upplýsingar veitir: Andri Már Rúnarsson, fjárfestatengill, í síma 772-5590 eða netfangið
