SYN SYN

Niðurstaða í samræmi við horfur

Niðurstaða í samræmi við horfur

Í ársbyrjun var meðferð á sýningarrétti sjónvarpsefnis breytt, samanburðartölur 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun.



Helstu niðurstöður:



• Tekjur á fjórða ársfjórðungi (4F) 2019 námu 4.935 milljónum króna sem er 9% lækkun frá sama tímabili 2018. Tekjur ársins lækkuðu um 943 milljónir króna milli ára, eða um 5%.



• EBITDA nam 1.409 milljónum króna á 4F í samanburði við 1.449 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 28,6% á 4F 2019 samanborið við 26,7% á 4F 2018. EBITDA leiðrétt fyrir IFRS 16 á 4F er 1.270 milljónir króna. EBITDA ársins 2019 nam 5.509 milljónum króna og lækkaði um 110 milljónir króna miðað við árið 2018.



• Tap á 4F 2019 nam 2.101 milljónum króna samanborið við 193 milljón króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Á 4F 2019 var viðskiptavild færð niður um 2.452 milljónir króna sem skýrir tapið á 4F 2019. Afkoma 4F 2019 að frádreginni niðurfærslu viðskiptavildar hefði verið hagnaður að fjárhæð 351 milljón króna.



• Tap ársins nam 1.748 milljónum króna miðað við hagnað upp á 443 milljónir króna árið 2018. Hagnaður ársins að frádreginni niðurfærslu á viðskiptavild var 703 milljónir króna. Einskiptiskostnaður ársins nemur 358 milljónum króna.



• Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.953 milljónum króna samanborið við 1.358 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 44%.



• Heildarfjárfestingar félagsins á árinu námu 4.719 milljónum króna þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 1.833 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 2.789 milljónir króna.



• Fjármögnunarhreyfingar félagsins á árinu voru neikvæðar um 380 milljónir króna á móti jákvæðum hreyfingum upp á 434 milljónum króna á árinu 2018 sem er breyting um 814 milljónir króna.



• Eiginfjárhlutfall Sýn hf. var 27,5% í lok árs 2019.



• Markmið stjórnenda er að ná aukinni framlegð og betra sjóðstreymi úr rekstri félagsins á árinu 2020. Fjárfestingar ársins verða í kringum 1 milljarð.



Heiðar Guðjónsson, forstjóri:



„Uppgjör síðasta árs liggur nú fyrir með tap uppá 1.748 milljónir króna. Það ætti ekki að vera margt þar sem kemur á óvart enda eru sjóðstreymi og EBITDA ársins í takt við horfur. Árið markast af því að verið var að framkvæma miklar breytingar á rekstrinum og færa niður viðskiptavild. Jákvæð breyting er verulega bætt sjóðstreymi en frjálst fjárflæði eykst um yfir milljarð króna.



Á síðasta ári fór fyrirtækið fyrst í sameiginlega stefnumótun. Í framhaldi af því var skipuriti breytt og nýir framkvæmdastjórar eru nú í öllum stöðum, utan tæknisviðs. Tæknisviði var skipt upp og sett að hluta undir rekstrarsvið, sem mun auk skilvirkni og hraða framförum í starfrænni aðlögun. Við innleiddum nýja vörumerkja– og samskiptastefnu og fórum í framhaldi af því í 4DX átaksverkefni. Ánægja viðskiptavina jókst strax umtalsvert í kjölfarið. Nú erum við í stöðu til að sækja fram.



Lykill að betri rekstrarárangri er að umbreyta föstum kostnaði í breytilegan. Þar eru ýmis verkefni í gangi. Við erum að auka útvistun verkefna auk þess sem við erum enn að hagræða með því að efla frekari samvinnu á milli deilda fyrirtækisins. Varðandi framtíð fjarskipta þá skiptir mestu að fjárfestingar séu markvissar með tilliti til öryggis og hagkvæmni. Mikilvægur liður í því var yfirlýsing fjarskiptafyrirtækjanna frá 19. desember síðast liðnum, þó enn sé of snemmt að fullyrða um árangur af því starfi.



Horfur ársins 2020 eru ágætar. Við vitum að í óbreyttum rekstri munum við sýna bata í sjóðstreymi. Ofan á það kemur enn straumlínulagaðri rekstur og hugsanlegt hagræði af samstarfi í uppbyggingu 5G og tengdra verkefna sem gerir það að verkum að erfitt er styðjast við sama form á horfum og áður hefur verið. Eldra form á horfum nær ekki utan um þær breytingar sem við ætlum að gera á rekstrinum.“



Frekari upplýsingar:

✓ Lilja Birgisdóttir samskiptastjóri Sýnar tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið eða í síma 779-3002.

Viðhengi

EN
26/02/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Endurfjármögnun Sendafélagsins ehf., endurgreiðsla hluthafalá...

Sýn hf.: Endurfjármögnun Sendafélagsins ehf., endurgreiðsla hluthafalána og bráðabirgðaniðurstöður Sýnar 2025 Vísað er til fyrri tilkynninga Sýnar hf. um sölu á 4G og 5G dreifikerfi félagsins til Sendafélagsins ehf., síðast dags. 31. desember 2025 þegar tilkynnt var um afhendingu eignanna. Sendafélagið ehf. hefur nú tryggt sér langtímafjármögnun hjá Landsbankanum hf. Í kjölfarið hefur Sendafélagið endurgreitt að stórum hluta hluthafalán sem Sýn hf. og Nova hf. veittu félaginu í tengslum við kaupin á dreifikerfinu. Endurgreiðsla hluthafalánsins er í samræmi við upphaflegar forsendur viðski...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Flöggun Arion banki hf.

Sýn hf.: Flöggun Arion banki hf. Sjá meðfylgjandi: Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn hf. lýkur sölu á 4G og 5G dreifikerfi til Sendafélagsins ...

Sýn hf.: Sýn hf. lýkur sölu á 4G og 5G dreifikerfi til Sendafélagsins ehf. Eins og fram kom í fyrri kauphallartilkynningu  Sýnar hf. (hér eftir „félagið“ eða  Sýn hf.“) undirrituðu Nova hf. og Sýn hf. þann 30. október 2025 samstarfssamning, sem kvað meðal annars á um fyrirhugað framsal dreifikerfa Nova hf. og Sýnar hf. til Sendafélagsins ehf., kt. 440515-1850, og hluthafasamkomulag varðandi stjórnhætti Sendafélagsins ehf., ákvarðanatöku innan þess félags o.fl. Þá kom fram í fyrri kauphallartilkynningu að þann 12. nóvember 2025 undirrituðu félagið og Sendafélagið ehf. kaupsamning um sölu þes...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Fjárhagsdagatal 2026

Sýn hf.: Fjárhagsdagatal 2026 Sýn hf. mun halda aðalfundi og birta árshluta- og ársuppgjör samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:                                                                   Afkoma 4F og ársuppgjör 2025         26. febrúar 2026                                 Aðalfundur                                                     26. mars 2026                                 Afkoma 1F 2026                                         7. maí 2026                                 Afkoma 2F 2026                                         27. ágúst 2026                                ...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Breytingar á Fjárhagsdagatali 2025

Sýn hf.: Breytingar á Fjárhagsdagatali 2025 Sýn hf. tilkynnir hér með um breytingu á Fjárhagsdagatali sem birt var þann 10.07.2025. Breytingin lýtur að afkomubirtingu vegna árshlutareiknings 4F og ársuppgjör 2025 og vegna Aðalfundar.                         Afkoma 4F og ársuppgjör 2024                                        20. febrúar 2025Aðalfundur                                                                        14. mars 2025Afkoma 1F 2025                                                                 7. maí 2025Afkoma 2F 2025                                                       ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch