SYN SYN

Sýn hf.: Breytingar í framkvæmdastjórn Sýnar hf.

Sýn hf.: Breytingar í framkvæmdastjórn Sýnar hf.

Skipulagsbreytingar og aukin skilvirkni í rekstri

Stjórn Sýnar hf. hefur samþykkt nýtt skipulag félagsins. Skipulagsbreytingarnar miða að því að auka skilvirkni í rekstri félagsins. Starfsemi móðurfélagsins er skipt í eftirfarandi rekstrareiningar: Stöð 2, Vefmiðla og útvarp, Vodafone og Innviði. Stoðsviðin verða: Fjármál, Lögfræðisvið, Mannauður og Upplýsingatækni - Endor. Þá hefur verið stofnuð ný sameiginleg Markaðs-, og sjálfbærnideild Sýnar. Fréttastofa vinnur eftir sem áður þvert á alla miðla félagsins. 

Við skipulagsbreytinguna koma þrír nýir aðilar í framkvæmdastjórn Sýnar. Eðvald Gíslason framkvæmdastjóri fjármála, Valdís Arnórsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs og Gunnar Guðjónsson framkvæmdastjóri upplýsingatækni og stjórnarformaður Endor sem er dótturfélag Sýnar. Fyrir eru í framkvæmdastjórn Sýnar Sesselía Birgisdóttir framkvæmdastjóri Vodafone og Páll Ásgrímsson framkvæmdastjóri lögfræðisviðs.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar

“Við leggjum ríka áherslu á að einfalda ákvarðanatöku og boðleiðir í rekstrinum og er breytingin á skipulaginu liður í þeirri vegferð. Skýr sjálfbærnivegferð, helgun mannauðs og öflug upplýsingatækni er grundvöllur að framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina Sýnar. Markmið þessara breytinga er aukin verðmætasköpun og að styrkja enn frekar ímynd allra vörumerkja Sýnar sem eru afar verðmæt.”

Nánari upplýsingar um nýja framkvæmdastjóra:

Eðvald Gíslason, framkvæmdastjóri fjármála

Eðvald er reyndur stjórnandi með víðtæka reynslu úr fjármálageiranum. Hann er með sterkan bakgrunn úr starfi í fjármálastýringu, greiningum, áætlanagerð, líkanagerð, verkefnastýringu og hefur starfað lengi í öguðu vinnuumhverfi með straumlínustjórnun og stafræna framþróun að leiðarljósi. Eðvald starfaði áður hjá Kviku þar sem að hann veitti hagdeild forstöðu. Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá Greiðslumiðlun Íslands og við greiningar hjá NextCODE, CCP og Nykredit banka í Danmörku.

Valdís Arnórsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs

Valdís hefur starfað sem mannauðsstjóri Sýnar síðan í janúar 2024. Valdís hefur viðamikla reynslu sem stjórnandi í mannauðsmálum. Valdís kom til Sýnar frá Marel þar sem að hún starfaði í 11 ár, þar af lengst sem stjórnandi í alþjóðlegu mannauðsteymi ásamt því að leiða krísuteymi fyrirtækisins. Þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá Heklu. 

Gunnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatækni

Gunnar er einn af stofnendum Endor og hefur verið framkvæmdastjóri Endor, nú dótturfélag Sýnar, frá stofnun þess árið 2015. Endor er kröftugt sérfræðifyrirtæki sem veitir faglega þjónustu og ráðgjöf tengt áskorunum í rekstri upplýsingatækniumhverfa fyrir fjölbreytilega viðskiptavini hérlendis og erlendis. Gunnar hefur viðamikla reynslu í upplýsingatækni, rekstri og þjónustu. Hann var forstjóri Opinna Kerfa frá árinu 2008 til ársins 2015 og þar áður starfaði hann í mismunandi stjórnunarstörfum innan þess félags frá árinu 2000.

Meðfylgjandi er nýtt skipurit Sýnar

Viðhengi



EN
11/04/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2026

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2026 Sjá viðhengi: Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar – B...

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar – Beiðni um margfeldiskosningu Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 15:00. Eftirtalin framboð bárust innan lögboðins framboðsfrests:Framboð til aðalstjórnar Hákon StefánssonHeiðrún Lind MarteinsdóttirKjartan BriemPetrea Ingileif GuðmundsdóttirRagnar Páll DyerRannveig Eir Einarsdóttir Framboð til varastjórnar: Daði KristjánssonIngibjörg Ásdís Ragnarsdóttir Þar sem einungis tvö framboð bárust til varastjórnar verða hlutaðeigandi sjálfkjörin á fundinum. Framboð til tilnefningarnefndar: Guðr...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundar

Sýn hf.: Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundar Í viðhengi er að finna endanlega dagskrá og tillögur stjórnar til aðalfundar Sýnar hf. Eina breytingin frá fyrra fundarboði er að við dagskrána hefur bæst við dagskrárliður nr. 13 um fyrirhuguð viðskipti með vefmiðla og útvarp Sýnar hf. – til kynningar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn og Síminn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- o...

Sýn hf.: Sýn og Síminn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Stjórn Sýnar hf. hefur tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Heildarvirði (e. enterprise value) í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 m.kr. Samkvæmt skilmálaskjalinu skuldbinda aðilar sig til þess að vin...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Boðun aðalfundar

Sýn hf.: Boðun aðalfundar Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars kl. 15:00.Meðfylgjandi er fundarboð, dagskrá og tillögur stjórnar, skýrsla tilnefningarnefndar, og tillaga að breyttri starfskjarastefnu með auðkenndum breytingum innan hornkolfa. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn auk fundargagna er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins:   Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch