SYN SYN

Sýn hf.: Endurfjármögnun Sendafélagsins ehf., endurgreiðsla hluthafalána og bráðabirgðaniðurstöður Sýnar 2025

Sýn hf.: Endurfjármögnun Sendafélagsins ehf., endurgreiðsla hluthafalána og bráðabirgðaniðurstöður Sýnar 2025

Vísað er til fyrri tilkynninga Sýnar hf. um sölu á 4G og 5G dreifikerfi félagsins til Sendafélagsins ehf., síðast dags. 31. desember 2025 þegar tilkynnt var um afhendingu eignanna.

Sendafélagið ehf. hefur nú tryggt sér langtímafjármögnun hjá Landsbankanum hf. Í kjölfarið hefur Sendafélagið endurgreitt að stórum hluta hluthafalán sem Sýn hf. og Nova hf. veittu félaginu í tengslum við kaupin á dreifikerfinu.

Endurgreiðsla hluthafalánsins er í samræmi við upphaflegar forsendur viðskiptanna og felur í sér innflæði handbærs fjár til Sýnar hf. að fjárhæð 938 m.kr. Greiðslan leiðir til lækkunar skulda félagsins og styrkir jafnframt sjóðstreymi og lausafjárstöðu þess.

Bráðabirgðaniðurstaða rekstrarársins 2025

Sýn hf. gaf út uppfærða afkomuspá fyrir rekstrarárið 2025 þann 16. október 2025. Samkvæmt spánni var gert ráð fyrir að EBITDAaL næmi um 3.450 m.kr., að fjárfestingar ársins yrðu um 3.150 m.kr. og að EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum yrði um 300 m.kr.

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri félagsins fyrir rekstrarárið 2025 sem liggur nú fyrir nam EBITDAaL 3.490 m.kr. (1.371 m.kr. á 4. ársfjórðungi), fjárfestingar námu 3.183 m.kr. (1.081 m.kr. á 4. ársfjórðungi) og EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum því um 307 m.kr. (290 m.kr. á 4. ársfjórðungi). Um óendurskoðaðar bráðabirgðatölur er að ræða og verður endanlegt uppgjör birt þann 26. febrúar næstkomandi.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl félagsins í gegnum netfangið 



EN
26/01/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2026

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2026 Sjá viðhengi: Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar – B...

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar – Beiðni um margfeldiskosningu Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 15:00. Eftirtalin framboð bárust innan lögboðins framboðsfrests:Framboð til aðalstjórnar Hákon StefánssonHeiðrún Lind MarteinsdóttirKjartan BriemPetrea Ingileif GuðmundsdóttirRagnar Páll DyerRannveig Eir Einarsdóttir Framboð til varastjórnar: Daði KristjánssonIngibjörg Ásdís Ragnarsdóttir Þar sem einungis tvö framboð bárust til varastjórnar verða hlutaðeigandi sjálfkjörin á fundinum. Framboð til tilnefningarnefndar: Guðr...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundar

Sýn hf.: Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundar Í viðhengi er að finna endanlega dagskrá og tillögur stjórnar til aðalfundar Sýnar hf. Eina breytingin frá fyrra fundarboði er að við dagskrána hefur bæst við dagskrárliður nr. 13 um fyrirhuguð viðskipti með vefmiðla og útvarp Sýnar hf. – til kynningar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn og Síminn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- o...

Sýn hf.: Sýn og Síminn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Stjórn Sýnar hf. hefur tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Heildarvirði (e. enterprise value) í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 m.kr. Samkvæmt skilmálaskjalinu skuldbinda aðilar sig til þess að vin...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Boðun aðalfundar

Sýn hf.: Boðun aðalfundar Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars kl. 15:00.Meðfylgjandi er fundarboð, dagskrá og tillögur stjórnar, skýrsla tilnefningarnefndar, og tillaga að breyttri starfskjarastefnu með auðkenndum breytingum innan hornkolfa. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn auk fundargagna er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins:   Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch