SYN SYN

Sýn hf.: Framkomin framboð – fyrirkomulag aðalfundar

Sýn hf.: Framkomin framboð – fyrirkomulag aðalfundar

Eftirtalin gefa kost á sér til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar Sýnar á aðalfundi, sem haldinn verður föstudaginn 19. mars 2021 kl. 15:00.

Framboð til aðalstjórnar:

*  Hjörleifur Pálsson

*  Tanya Zharov

*  Sigríður Vala Halldórsdóttir

*  Petrea Ingileif Guðmundsdóttir

*  Páll Gíslason

Framboð til varastjórnar:

*  Óli Rúnar Jónsson

*  Þyri Dröfn Konráðsdóttir

Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Sýnar hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og tveir sitja í varastjórn. Verður því sjálfkjörið í báðum tilvikum. Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í skýrslu tilnefningarnefndar, sem birt var með aðalfundarboði þann 25. febrúar sl.

Framboð til tilnefningarnefndar:

Í samræmi við starfsreglur stjórnar og starfsreglur tilnefningarnefndar gefst hluthöfum jafnframt tækifæri á að kjósa tvo af þremur í tilnefningarnefnd. Þriðji meðlimur í tilnefningarnefnd er tilnefndur af stjórn félagsins.

Framboð til tilnefningarnefndar:

*  Ragnheiður S. Dagsdóttir

*  Þröstur Olaf Sigurjónsson

Þar sem einungis tvö framboð til tilnefningarnefndar bárust innan framboðsfrests verða þeir nefndarmenn sem kosnir eru af aðalfundi félagsins sjálfkjörnir.

Fyrirkomulag aðalfundar

Líkt og getið var um í aðalfundarboði þann 25. febrúar og 5. mars sl. þá verður aðalfundur Sýnar hf. haldinn í aðalstöðvum félagsins að Suðarlandsbraut 8,  Reykjavík, föstudaginn 19. mars kl. 15:00. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum, án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað, í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafngilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða taka þátt í fundinum með rafrænum hætti, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu  eigi síðar en kl. 15:00 þann 18. mars nk. eða sólarhring fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma.

Í ljósi samkomutakmarkana eru þeir hluthafar sem hyggjast mæta á fundinn á fundarstað beðnir um að láta vita um mætingu á fundinn við fyrsta tækifæri með því að senda skilaboð á  svo hægt sé að áætla þann fjölda sem mætir.

Nánari leiðbeiningar um skráningu á aðalfundinn og rafræna þátttöku og atkvæðagreiðslu er hægt að finna á vefsvæði félagsins: syn.is/fjarfestatengsl/adalfundur. Þar er jafnframt að finna önnur fundargögn og frekari upplýsingar tengdar aðalfundinum.



EN
16/03/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on SYN

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2026

Sýn hf.: Helstu niðurstöður aðalfundar Sýnar hf. árið 2026 Sjá viðhengi: Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar – B...

Sýn hf.: Framboð til stjórnar, varastjórnar og tilnefningarnefndar – Beiðni um margfeldiskosningu Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 15:00. Eftirtalin framboð bárust innan lögboðins framboðsfrests:Framboð til aðalstjórnar Hákon StefánssonHeiðrún Lind MarteinsdóttirKjartan BriemPetrea Ingileif GuðmundsdóttirRagnar Páll DyerRannveig Eir Einarsdóttir Framboð til varastjórnar: Daði KristjánssonIngibjörg Ásdís Ragnarsdóttir Þar sem einungis tvö framboð bárust til varastjórnar verða hlutaðeigandi sjálfkjörin á fundinum. Framboð til tilnefningarnefndar: Guðr...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundar

Sýn hf.: Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundar Í viðhengi er að finna endanlega dagskrá og tillögur stjórnar til aðalfundar Sýnar hf. Eina breytingin frá fyrra fundarboði er að við dagskrána hefur bæst við dagskrárliður nr. 13 um fyrirhuguð viðskipti með vefmiðla og útvarp Sýnar hf. – til kynningar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Sýn og Síminn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- o...

Sýn hf.: Sýn og Síminn undirrita skilmálaskjal um kaup Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Stjórn Sýnar hf. hefur tekið ákvörðun um að ganga til einkaviðræðna við Símann hf. á grundvelli skilmálaskjals um kaup á öllum vef- og útvarpsmiðlum félagsins. Rekstrareiningin sem um ræðir inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Heildarvirði (e. enterprise value) í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 m.kr. Samkvæmt skilmálaskjalinu skuldbinda aðilar sig til þess að vin...

 PRESS RELEASE

Sýn hf.: Boðun aðalfundar

Sýn hf.: Boðun aðalfundar Aðalfundur Sýnar hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars kl. 15:00.Meðfylgjandi er fundarboð, dagskrá og tillögur stjórnar, skýrsla tilnefningarnefndar, og tillaga að breyttri starfskjarastefnu með auðkenndum breytingum innan hornkolfa. Allar frekari upplýsingar varðandi aðalfundinn auk fundargagna er hægt að nálgast á heimasíðu félagsins:   Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch