A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

Leiðrétting: VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar – endurkaup hefjast

Leiðrétting: VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar – endurkaup hefjast

Í tilkynningu sem birt var í dag kl. 10:30:33 CET láðist að geta um hámarksfjárhæð endukaupanna, sem er kr. 1.800.000.000 að markaðsvirði. Tilkynningin leiðréttist hér með:

Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) þann 17. mars 2022 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 12 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins.  

Stjórn VÍS tók á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess, sbr. tilkynningu frá félaginu þann 29. september sl. Félaginu hefur nú borist samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („Fjármálaeftirlitið“) og munu endurkaup hefjast þegar í stað.

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru 100.000.000 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 5,71% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.750.000.000 að nafnvirði. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 1.800.000.000 að markaðsvirði. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 1. febrúar 2023 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.    

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags miðast við 25% af meðaldagsveltu undangenginna 20 viðskiptadaga, en þó aldrei hærra en 1.150.000 hlutir að nafnverði. Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Endurkaupin verða framkvæmd af Acro verðbréfum hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.



Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með tölvupósti á



EN
16/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Rekstrarhorfur og fjárhagsdagatal fyrir fjárhagsárið 2026

SKAGI: Rekstrarhorfur og fjárhagsdagatal fyrir fjárhagsárið 2026 Áætlun samstæðu Skaga fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að hagnaður verði 4,1 milljarðar króna eftir skatta sem samsvarar 17% arðsemi eiginfjár en markmið félagsins er að skila yfir 15% arðsemi eiginfjár. Rekstrarhorfur Skaga fyrir fjárhagsárið 2026 eru eftirfarandi: Samsett hlutfall í tryggingarekstri: 92-95%, markmið 3.500m Ávöxtun fjárfestingasafns: Markmið >9,5% Upplýst verður um horfur í samsettu hlutfalli í tryggingastarfsemi, og tekjum í fjármálastarfsemi ef þær breytast frá þeim vikmörkum sem kynnt eru. Vænt ávöxtun ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Viðskipti stjórnenda

SKAGI: Viðskipti stjórnenda Meðfylgjandi er tilkynning um viðskipti stjórnenda hjá Skaga vegna nýtingar kauprétta.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um nýtingu kauprétta og hækkun hlutafjár

SKAGI: Tilkynning um nýtingu kauprétta og hækkun hlutafjár Líkt og tilkynnt var um þann 3. desember 2024 eru í gildi kaupréttarsamningar við starfsfólk Skaga og dótturfélaga. Kaupréttarsamningarnir voru gerðir í samræmi við kaupréttaráætlun byggðri á 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem útfærð var af stjórn Skaga í júní 2024 og samþykkt af Skattinum í október sama ár. Fyrsta innlausnartímabilinu samkvæmt kaupréttarsamningunum er nú lokið og bárust félaginu tilkynningar um nýtingu kaupréttar sem taka til samtals 9.379.970 hluta í félaginu á genginu 18,85 krónur á hvern hlut eða fyrir ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Flöggun Íslandssjóðir hf.

SKAGI: Flöggun Íslandssjóðir hf. Sjá meðfylgjandi flöggunartilkynningu: Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKAGI: Flöggun Íslandsbanki hf.

SKAGI: Flöggun Íslandsbanki hf. Sjá meðfylgjandi flöggunartilkynningu: Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch