A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

SKAGI: Afhending hlutabréfatengdra réttinda vegna kaupaukakerfis ársins 2024

SKAGI: Afhending hlutabréfatengdra réttinda vegna kaupaukakerfis ársins 2024

Gerðir hafa verið kaupréttarsamningar og samningar um afhendingu kaupauka í formi hlutabréfa í Skaga við tiltekna stjórnendur þar sem hluta kaupauka vegna árangurs ársins 2024 er ráðstafað. Kaupaukinn byggir á kaupaukakerfi stjórnenda sem sett var á grundvelli starfskjarastefnu Skaga hf. sem samþykkt var á aðalfundi þann 21. mars 2024. Reglur kerfisins gera nánar tiltekið ráð fyrir að 50% af kaupauka sé greiddur í formi hlutabréfatengdra réttinda og þar af skuli greiðslu 40 % af kaupauka ársins frestað til þriggja ára. Starfsmenn hafa í því samhengi val um hvort kaupauki sé greiddur í formi kaupréttar eða í formi hlutabréfa í Skaga. Kaupréttarsamningar eru með nýtingarheimild eftir þrjú ár og samningar um afhendingu á tilteknum fjölda hlutabréfa í Skaga gera ráð fyrir afhendingu bréfanna að þremur árum liðnum en 10% af heildar kaupauka er afhentur án frestunar.

Fyrir kaupréttina og hlutabréfin greiða þeir starfsmenn sem hér er tilkynnt um alls 33.456.718 kr. með kaupaukum. Skilmálar kaupréttarsamninga og samninga um afhendingu hlutabréfa eru í samræmi við starfskjarastefnu og kaupaukakerfi félagsins.

Meginefni kaupréttarsamninganna er sem hér segir:

  • Grunngengi í kaupréttarsamningunum og samningum um afhendingu hlutabréfa er 20,84 kr. á hlut sem jafngildir vegnu meðalgengi í viðskiptum með hluti í félaginu á Nasdaq Iceland síðustu tíu viðskiptadaga fyrir undirritun kaupréttarsamninga. Við grunnverð bætast áhættulausir vextir frá dagsetningu kaupréttarsamnings fram til nýtingardags, sem nú eru 7,47%. Skal kaupverðið m.a. leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að vera ákveðnar á ávinnslutíma kaupréttanna.
  • Virði kaupréttanna var ákvarðað með Black-Scholes útreikningi og rúmast verðmætin innan þeirra laga og reglna sem gilda um slíka kaupauka.

Meginefni samninga um afhendingu hlutabréfa er sem hér segir:

  • Fjöldi hluta ákvarðast með að deila fjárhæð úthlutaðs kaupaauka með gengi hlutabréfa í Skaga.
  • Gengið í samningum um afhendingu hlutabréfa er 20,84 kr. á hlut sem jafngildir meðalgengi í viðskiptum með hluti í félaginu á Nasdaq Iceland í 10 daga fyrir undirritun samnings um greiðslu kaupauka í formi hlutabréfa.

Upplýsingar um viðskipti stjórnenda með framangreinda kauprétti og afhendingu hlutabréfa eru í viðhengi:

Viðhengi



EN
04/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2026

SKAGI: Endanleg dagskrá og tillögur til aðalfundar árið 2026 Stjórn Skaga hf. hefur boðað til aðalfundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, þriðjudaginn 17. mars 2026. Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Fundurinn hefst kl. 16:00. Endanleg dagskrá er í viðhengi. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja aðalfundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á skráningarsíðu fundarins: Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 15. mars, eða tveimur dögum fyrir aðalfund. Með innskráning...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við end...

SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 10 Í 10. viku 2026 keypti Skagi 2.117.312 eigin hluti að kaupverði alls kr. 39.158.638 eins og hér segir: VikaDagsetningTímiKeyptir hlutir ViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti Vika 102.3.202615:30350.00018,706.545.00010.682.688Vika 103.3.202609:43367.31218,556.813.63811.050.000Vika 104.3.202610:24400.00018,507.400.00011.450.000Vika 105.3.202613:30500.00018,409.200.00011.950.000Vika 106.3.202610:33500.00018,409.200.00012.450.000Samtals  2.117.312 39.158.638  Kaupin eru í samræmi við e...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

SKAGI: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af hlutafé félagsins.  Þann 17. október 2025 barst Skaga samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands („fjármálaeftirlitið“) fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Stjórn Skaga hefur á grundvelli fyrrgreindra heimilda ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingu vegna kaup...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026

SKAGI: Aðalfundur Skaga 17. mars 2026 Stjórn Skaga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, Reykjavík, auk þess sem boðið verður upp á rafræna þátttöku. Fundarboð með nánari upplýsingum um dagskrá aðalfundar ásamt tillögum stjórnar, starfskjarastefnu og skýrslu tilnefningarnefndar má finna í meðfylgjandi viðhengjum. Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á   Viðhengi:   Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch