VÍS: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2021 og kynningarfundur
VÍS birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða þann 21. október næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 22. október, klukkan 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 3.
Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, mun kynna uppgjörið og svara spurningum.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu
