VÍS: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 47. viku 2022 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 5.750.000 eigin hluti fyrir kr. 137.293.750 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
21.11.2022 | 09:41:22 | 525.000 | 18,15 | 9.528.750 | 3.975.000 |
21.11.2022 | 13:56:47 | 625.000 | 18 | 11.250.000 | 4.600.000 |
22.11.2022 | 11:09:05 | 575.000 | 17,9 | 10.292.500 | 5.175.000 |
22.11.2022 | 14:07:45 | 575.000 | 18 | 10.350.000 | 5.750.000 |
23.11.2022 | 09:48:16 | 575.000 | 18,4 | 10.580.000 | 6.325.000 |
23.11.2022 | 12:48:34 | 575.000 | 18,45 | 10.608.750 | 6.900.000 |
24.11.2022 | 09:59:52 | 575.000 | 18,45 | 10.608.750 | 7.475.000 |
24.11.2022 | 10:08:36 | 575.000 | 18,45 | 10.608.750 | 8.050.000 |
25.11.2022 | 09:48:30 | 575.000 | 18,45 | 10.608.750 | 8.625.000 |
25.11.2022 | 10:27:43 | 575.000 | 18,45 | 10.608.750 | 9.200.000 |
5.750.000 | 137.293.750 | 9.200.000 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 16. nóvember 2022, sbr. tilkynningu á markað sama dag.
VÍS hefur keypt samtals 9.200.000 hluti í félaginu sem samsvarar 9,20% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 201.176.250. VÍS á nú samtals 9.200.000 hluti eða 0,53% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.750.000.000.
Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 100.000.000 hlutir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
