VÍS: Samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna í nóvember 2020
Samsett hlutfall* í nóvember 2020 var 99,7% og það sem af er ári, 106,8%. Samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 106,1%. Undirliggjandi tryggingarekstur í nóvember var góður en litast þó af uppgjöri tiltekinna stærri tjóna frá fyrri árum.
VÍS greiddi viðskiptavinum sínum tæpan 1,3 milljarð króna í tjónabætur** í nóvember og hefur greitt viðskiptavinum sínum tæpa 15,6 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.
Ávöxtun fjárfestingaeigna í nóvember var 2,4% en ávöxtun til loka nóvember frá áramótum var 10,5%.
Félagið mun næst veita upplýsingar um samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna með birtingu ársuppgjörs þann 25. febrúar nk.
Eins og fram kom í tilkynningu félagsins hefur afkomuspá verið uppfærð fyrir árið 2020. Spáin gerði ráð fyrir 390 milljóna króna hagnaði fyrir skatta en ný spá gerir ráð fyrir 1.150 milljónum króna í hagnað fyrir skatta. Félagið tilkynnir ef frávik frá væntum hagnaði ársins er meira en 300 milljónir króna.
*Samsett hlutfall er tjónakostnaður, endurtryggingakostnaður og rekstrarkostnaður af vátryggingastarfsemi sem hlutfall af iðgjöldum tímabilsins samkvæmt leiðbeinandi tilmælum Seðlabanka Íslands, fjármálaeftirlits nr. 1/2020.
**Hafa skal í huga að tjónakostnaður tryggingafélaga getur sveiflast á milli mánaða.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu