VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar
Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. þann 19. mars 2020 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 12 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins.
Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess.
Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir er 34.000.000 hlutir að nafnvirði, en það jafngildir um 1,79% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.894.462.192 að nafnvirði. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 500.000.000 að markaðsvirði. Heimildin gildir til og með 18. mars 2021.
Endurkaupin verða framkvæmd af Íslenskum fjárfestum hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.
Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 2.000.000 hlutir að nafnverði, sem er innan við fjórðungur af meðalveltu síðustu fjögurra vikna. Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.
Fyrir á Vátryggingafélag Íslands hf. enga eigin hluti.
Endurkaup vátryggingafélaga í þeim tilgangi að lækka hlutafé eru háð fyrirfram samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður sérstaklega þegar slíkt samþykki hefur verið veitt og endurkaup munu hefjast.