A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

VÍS: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Á aðalfundi VÍS þann 16. mars 2023 var samþykkt að heimila stjórn að setja upp endurkaupaáætlun á næstu 12 mánuðum, fyrir allt að 10% af hlutafé félagsins. 

Stjórn VÍS hefur á grundvelli framangreindrar heimildar ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi: i) að mæta skuldbindingu vegna kaupréttarsamninga á grundvelli kaupréttaráætlunar skv. 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og/eða til greiðslu kaupauka til starfsmanna skv. starfskjarastefnu og kaupaukakerfi félagsins og/eða ii) til lækkunar á hlutafé félagsins og/eða iii) sem gagngjald í viðskiptum, allt í samræmi við heimildir skv. samþykktum félagsins. Þann 19. desember 2023 barst félaginu samþykki frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og munu endurkaup hefjast 31. janúar nk. 

Hámarksfjöldi hluta, sem áætlunin kveður á um, er að keyptir verða allt að 30 milljón hlutir að nafnvirði, en það jafngildir 1,57% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú 1.906.700.000 krónur að nafnvirði. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 500 milljónir króna að heildarkaupverði. 

Gert er ráð fyrir að endurkaupum ljúki í síðasta lagi við lokun markaða þann 15. mars  2024 eða fyrr, ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.    

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags miðast við 25% af meðaldagsveltu undangenginna 20 viðskiptadaga. Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.  

Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.   

Endurkaupin verða framkvæmd af markaðsviðskiptum Arion banka sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.  

Nánari upplýsingar:  

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 og með tölvupósti á   





EN
24/01/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Rekstrarhorfur og fjárhagsdagatal fyrir fjárhagsárið 2026

SKAGI: Rekstrarhorfur og fjárhagsdagatal fyrir fjárhagsárið 2026 Áætlun samstæðu Skaga fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að hagnaður verði 4,1 milljarðar króna eftir skatta sem samsvarar 17% arðsemi eiginfjár en markmið félagsins er að skila yfir 15% arðsemi eiginfjár. Rekstrarhorfur Skaga fyrir fjárhagsárið 2026 eru eftirfarandi: Samsett hlutfall í tryggingarekstri: 92-95%, markmið 3.500m Ávöxtun fjárfestingasafns: Markmið >9,5% Upplýst verður um horfur í samsettu hlutfalli í tryggingastarfsemi, og tekjum í fjármálastarfsemi ef þær breytast frá þeim vikmörkum sem kynnt eru. Vænt ávöxtun ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Viðskipti stjórnenda

SKAGI: Viðskipti stjórnenda Meðfylgjandi er tilkynning um viðskipti stjórnenda hjá Skaga vegna nýtingar kauprétta.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning um nýtingu kauprétta og hækkun hlutafjár

SKAGI: Tilkynning um nýtingu kauprétta og hækkun hlutafjár Líkt og tilkynnt var um þann 3. desember 2024 eru í gildi kaupréttarsamningar við starfsfólk Skaga og dótturfélaga. Kaupréttarsamningarnir voru gerðir í samræmi við kaupréttaráætlun byggðri á 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 sem útfærð var af stjórn Skaga í júní 2024 og samþykkt af Skattinum í október sama ár. Fyrsta innlausnartímabilinu samkvæmt kaupréttarsamningunum er nú lokið og bárust félaginu tilkynningar um nýtingu kaupréttar sem taka til samtals 9.379.970 hluta í félaginu á genginu 18,85 krónur á hvern hlut eða fyrir ...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Flöggun Íslandssjóðir hf.

SKAGI: Flöggun Íslandssjóðir hf. Sjá meðfylgjandi flöggunartilkynningu: Viðhengi

 PRESS RELEASE

SKAGI: Flöggun Íslandsbanki hf.

SKAGI: Flöggun Íslandsbanki hf. Sjá meðfylgjandi flöggunartilkynningu: Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch