VÍS: Tilkynning vegna viðskiptavakta
Vátryggingafélagi Íslands hf. hafa borist tilkynningar frá Kviku banka og Arion banka sem sinna viðskiptavakt með hlutabréf félagsins sbr. tilkynningu frá 27.01.2020. Samkvæmt tilkynningunum munu þeir beita heimild í samningunum um að víkja frá skilyrðum þeirra í óviðráðanlegum aðstæðum, hvað varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.
Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri, í síma 660 5260.