A1W1Z1 Vatryggingafelag Islands hf

VÍS: Tilkynning vegna viðskiptavaktar

VÍS: Tilkynning vegna viðskiptavaktar

VÍS hefur endurnýjað samning við Arion banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu í Kauphöll Íslands NASDAQ OMX Iceland.

Samningurinn kveður á um að Arion banki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf útgefin af VÍS í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands. Hvert kaup- og sölutilboð skal vera að lágmarki 1.000.000 hlutir að nafnvirði á gengi sem Arion banki ákveður, en þó ekki með meira en 3% fráviki frá síðasta viðskiptaverði. Verðbil kaup- og sölutilboða skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni þannig að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki minna en 1,45%. Þó skal viðskiptavaka vera heimilt að fara tímabundið undir framangreint viðmið s.s. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Eigi Arion banki viðskipti með bréf félagsins fyrir 100 m.kr að markaðsvirði eða meira innan dags, sem fer um veltubók Arion banka (markaðsvakt bankans), falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags.

  

Samningurinn er ótímabundinn og kemur til framkvæmda frá og með 1. nóvember 2021. Samningurinn er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.



EN
01/11/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Vatryggingafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið

SKAGI: Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. slitið Með vísan til tilkynningar frá 6. október 2025, þar sem greint var frá undirritun samkomulags um helstu skilmála samruna („samkomulagið“) á milli Íslandsbanka hf. („Íslandsbanki“) og Skaga hf. („Skagi“), tilkynnir stjórn Skaga hér með um að samrunaviðræðum félaganna hefur verið slitið. Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu fé...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025

SKAGI: Ársuppgjör samstæðu Skaga hf. árið 2025 Verulegur afkomubati af grunnrekstri Metár í tryggingastarfsemi að baki Afkoma ársins 2025 og 4F hjá samstæðu Skaga hf. Helstu lykiltölur 2025 Samstæðan Hagnaður fyrir skatta nam 2.437m.kr. (2024: 2.545m. kr.)Hagnaður eftir skatta nam 1.902 m.kr. (2024: 2.258 m.kr.)Hagnaður á hlut nam 1,00 kr. (2024: 1,19 kr.)Afkoma grunnrekstrar fyrir skatta nam 2.417 m.kr (2024: 803 m.kr.)Arðsemi eigin fjár var 8,6% (2024: 10,2%) og gjaldþol samstæðu var 1,31 í lok tímabilsins.Eigið fé samstæðu nam 23.984 m.kr. við lok tímabilsins. Tryggingastarfsemi Á...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur

SKAGI: Birting ársuppgjörs 2025 og kynningarfundur Skagi mun birta uppgjör ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða þann 18. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjör ársins.   Hægt verður að fylgjast með fundinum á . Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.    

 PRESS RELEASE

SKAGI: Tilkynning frá tilnefningarnefnd Skaga

SKAGI: Tilkynning frá tilnefningarnefnd Skaga Tilnefningarnefnd Skaga auglýsir eftir framboðum eða tilnefningum til stjórnar Skaga vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður þriðjudaginn 17. mars 2026.  Frestur til að skila inn framboðum og sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til og með mánudagsins 2. febrúar 2026. Þess skal getið að allir núverandi stjórnarmenn gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn Skaga. Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem unnt er að nálgast og á vefsvæði tilnefningarnefndar á heimasíðu Skaga: . Útfylltum eyðublöðum, ásamt...

 PRESS RELEASE

SKAGI: Nýting kaupréttar að 14,1% hlut í Íslenskum verðbréfum

SKAGI: Nýting kaupréttar að 14,1% hlut í Íslenskum verðbréfum Stjórn Skaga hefur tekið ákvörðun um að nýta kauprétt á alls 14,1% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. („félagið“) af minnihlutaeigendum félagsins, sbr. . Kaupverðið reiknast út frá því að heildarvirði hluta sé 1,5% af eignum í stýringu félagsins þann 31. desember 2025. Gert er ráð fyrir að seljendur hlutanna fái kaupverðið greitt með 24.231.800  nýjum hlutum í Skaga sem lúta sölubanni til tveggja ára. Fjöldi hluta er reiknaður út frá meðalgengi hlutabréfa Skaga eins og það er skráð á aðalmarkaði Nasdaq Iceland síðustu 10 viðskiptada...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch