755171 Tm HF

Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar TM hf. á aðalfundi 18. mars 2021

Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar TM hf. á aðalfundi 18. mars 2021

Framboðsfrestur til stjórnar TM hf. rann út 13. mars 2021. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

Í aðalstjórn (í stafrófsröð):

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri,

Einar Örn Ólafsson, fjárfestir,

Helga Kristín Auðunsdóttir, lögfræðingur LLM,

Kristín Friðgeirsdóttir, verkfræðingur Ph.D., og

Örvar Kærnested, fjárfestir.

Í varastjórn (í stafrófsröð):

Bjarki Már Baxter, lögmaður, og

Bryndís Hrafnkelsdóttir, forstjóri.

Tilnefningarnefnd félagsins lagði til í skýrslu sinni 18. febrúar 2021 að ofangreindir frambjóðendur skyldu skipa stjórn félagsins næsta starfsár, en nánari upplýsingar um frambjóðendurna má finna í skýrslu nefndarinnar sem fylgdi með tilkynningu til Kauphallar um aðalfundinn og birt var 23. febrúar sl. Þá hefur nefndin lagt mat á hvort framjóðendurnir séu óháðir gagnvart félaginu eða hluthöfum sem eiga 10% hlut í félaginu eða meira, sbr. 2. mgr. 16. gr. samþykkta félagsins. Er það mat nefndarinnar að allir frambjóðendur teljast óháðir TM hf. og daglegum stjórnendum þess. Eins og sakir standa ræður enginn hluthafi yfir 10% eða meira af heildarhlutafé eða atkvæðavægi í félaginu, einn eða í samstarfi við tengda aðila, þannig að hann teljist vera stór hluthafi í skilningi laga og félagssamþykkta. Mat á því hvort frambjóðendur væru óháðir stórum hluthöfum fór því ekki fram.

Með því að fjöldi frambjóðanda, bæði til aðalstjórnar og varastjórnar, er hinn sami og nemur fjölda stjórnarsæta í aðalstjórn og varastjórn, teljast framangreindir frambjóðendur sjálfkjörnir til setu í stjórninni næsta starfsár.

Framboðsfrestur til setu tveggja manna í tilefningarnefnd félagsins rann einnig út 13. mars. Til setu í nefndinni hafa boðið sig fram:

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, og

Jakobína H. Árnadóttir, mannauðsstjóri Hrafnistu.

Með vísan til gr. 1.4 í starfsreglum nefndarinnar mat stjórn félagsins á fundi sínum í dag að frambjóðendurnir væru óháðir félaginu og daglegum stjórnendum þess.

Þar sem fleiri framboð bárust ekki eru þær Ingibjörg og Jakobína sjálfkjörnar til setu í nefndinni næsta starfsár.



EN
15/03/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Tm HF

 PRESS RELEASE

Samruni Kviku, TM og Lykils

Samruni Kviku, TM og Lykils Í dag, 30. mars 2021, samþykktu hluthafafundir Kviku banka hf. (,,Kvika“), TM hf. (,,TM“) og Lykils fjármögnunar hf. (,,Lykill“) að sameina félögin þrjú undir nafni og kennitölu Kviku þannig að TM og Lykli verður slitið án skuldaskila og félögin algerlega sameinuð Kviku (samruni með yfirtöku), sbr. 119.gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Samkvæmt samrunaáætlun félaganna, dags. 23. febrúar 2021, skal réttindum og skyldum TM og Lykils reikningslega lokið þann 1. janúar 2021 og tekur Kvika við öllum réttindum og skyldum TM og Lykils frá þeim tíma, þ. á m. skuldabré...

 PRESS RELEASE

Hluthafafundur TM 30. mars 2021 – Endanlegar tillögur og ályktanir

Hluthafafundur TM 30. mars 2021 – Endanlegar tillögur og ályktanir Samkvæmt samþykktum TM hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir hluthafafund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins.  Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests þar um sem var 20. mars sl. Eru endanlegar tillögur og ályktanir vegna hluthafafundar 30. mars 2021 því óbreyttar frá fyrri tilkynningu félagsins 8. mars sl. Allar upplýsingar um hluthafafundinn má nálgast á

 PRESS RELEASE

TM hf. - Niðurstöður aðalfundar 18. mars 2021.

TM hf. - Niðurstöður aðalfundar 18. mars 2021. Á aðalfundi TM hf. í dag, 18. mars 2021, voru samþykktar tillögur um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, starfskjarastefnu félagsins, þóknun til stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar. Að auki var kosinn endurskoðendur fyrir starfsárið 2021. Stjórnin félagsins, sem var sjálfkjörin, hefur skipt með sér verkum. Stjórnin er skipuð sem hér segir: Í aðalstjórn: Örvar Kærnested formaður, Kristín Friðgeirsdóttir varaformaður, Andri Þór Guðmundsson meðstjórnandi, Einar Örn Ólafsson meðstjórnandi og Helga Kristín Auðunsdóttir meðstj...

 PRESS RELEASE

Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar TM hf. á aðalfundi 18. mar...

Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar TM hf. á aðalfundi 18. mars 2021 Framboðsfrestur til stjórnar TM hf. rann út 13. mars 2021. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins: Í aðalstjórn (í stafrófsröð): Andri Þór Guðmundsson, forstjóri, Einar Örn Ólafsson, fjárfestir, Helga Kristín Auðunsdóttir, lögfræðingur LLM, Kristín Friðgeirsdóttir, verkfræðingur Ph.D., og Örvar Kærnested, fjárfestir. Í varastjórn (í stafrófsröð): Bjarki Már Baxter, lögmaður, og Bryndís Hrafnkelsdóttir, forstjóri. Tilnefningarnefnd félagsins lagði til í skýrslu sinni 18. feb...

 PRESS RELEASE

TM hf.: Skilyrt samþykki FME fyrir samruna Kviku, TM og Lykils

TM hf.: Skilyrt samþykki FME fyrir samruna Kviku, TM og Lykils Þann 23. febrúar sl. tilkynnti TM hf. („TM“) að undirrituð hefði verið samrunaáætlun vegna fyrirhugaðs samruna TM, Kviku banka hf. („Kvika“) og Lykils fjármögnunar hf. („Lykill“). Þann 26. febrúar síðastliðinn var svo tilkynnt um að tveir af fjórum fyrirvörum í samrunasamningi félaganna frá 25. nóvember sl. hefðu verið uppfylltir. Eftir stæðu fyrirvarar um samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („FME“) fyrir samrunanum og samþykki hluthafafunda í Kviku, TM og Lykli. Í dag, 9. mars 2021, tilkynnti FME Kviku, TM og Lykli ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch