755171 Tm HF

TM birtir lýsingu

TM birtir lýsingu

TM hf. birtir lýsingu í tengslum við:

  • Umsókn um að ný hlutabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland
  • Forgangsréttarútboð og almennt útboð á 93.750.000 nýjum hlutum í TM

Heildarfjöldi útgefinna hluta í TM hf. (“TM”) er 678.142.669 og hyggst félagið gefa út 93.750.000 nýja hluti til viðbótar. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði og hafa hlutirnir verið gefnir út í samræmi við íslensk lög. Viðskipti með hina nýju hluti verða í kerfum Nasdaq Iceland undir auðkenninu TM (ISIN: IS0000000586).

Bæði forgangsréttarútboðið og almenna útboðið lúta reglum laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti varðandi almenn útboð. Í auglýsingu þessari er  hugtakið "útboð"  notað sem samheiti um útboðin tvö.

Útboð 9.-12. desember

TM hf. hyggst selja nýja hluti í útboðinu. Markmið útboðsins er fjármögnun á kaupum TM á öllu hlutafé Lykils fjármögnunar hf.

Stærð útboðsins nemur 93.750.000 hlutum eða sem nemur 13,8% af útistandandi hlutafé í félaginu. Heildarsöluandvirði útboðsins mun nema 3,0 milljörðum króna, fáist áskrift að öllum þeim hlutum sem boðnir eru til sölu í útboðinu.

Útboðið nær til nýrra hlutabréfa í félaginu og skiptist í tvennt:

  1. Forgangsréttarútboð til hluthafa í TM
  2. Almennt útboð til íslenskra fjárfesta

Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama útboðsgengi sem verður 32,0 kr. á hlut eða sem samsvarar 9,1% afslætti af dagslokaverði hlutabréfa TM á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 3. desember 2019. Forgangsréttarhafar að hinum nýju hlutum TM eru þeir aðilar sem skráðir eru hluthafar TM kl. 17:00 (GMT) þann 12. desember 2019 og þeir aðilar sem fengið hafa forgangsrétt framseldan til sín og tilkynnt hafa um framsalið fyrir þann tíma samkvæmt reglum útboðsins.

Seljandi mun fyrst úthluta hinum nýju hlutum til þeirra aðila sem njóta forgangsréttar. Verði enn nýjum hlutum í TM óúthlutað eftir úthlutun til forgangsréttarhafa, verður þeim úthlutað í almenna útboðinu og mun útgefandi einhliða ákveða hvernig úthlutun þessara hluta verður háttað.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar opinberlega 13. desember 2019. Eindagi kaupverðs í útboðinu er áætlaður þann 17. desember 2019 og er gert ráð fyrir að hinir nýju hlutir verði teknir til viðskipta og að viðskipti með þá hefjist þann 18. desember 2019. 

Arion banki hefur umsjón með útboðinu og er einnig söluaðili í útboðinu.

Helstu skilmálar útboðsins:

  • Engin lágmarksfjárhæð er á áskriftum í forgangsréttarútboðinu
  • Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera að lágmarki 100.000 kr.
  • Tekið verður við áskriftum á vef Arion banka hf. (/tm-utbod) frá 9. desember 2019 kl. 10:00 (GMT) til 12. desember 2019 kl. 17:00 (GMT)
  • Fjárfestar hafa heimild til að bæta við áskrift sína eða fella hana niður á útboðstímabilinu
  • Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Arion banka í síma 444-7000 milli kl. 09.00 og 16.00 dagana 9. desember til 12. desember 2019 og tölvupóstfanginu

Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi við lok útboðstímabilsins. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um TM og skilmála útboðsins í lýsingu TM og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti, bæði er varðar rekstur TM og almenna áhættu sem er samfara því að fjárfesta í hlutabréfum.

Nánari upplýsingar:

Útgefandi lýsingar er TM hf., kt. 660269-2079, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar um TM, hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins sem dagsett er 4. desember 2019 og birt er á /fjarfestar. Þar má nálgast lýsinguna næstu 12 mánuði.



Stjórn TM hf.

EN
04/12/2019

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Tm HF

 PRESS RELEASE

Samruni Kviku, TM og Lykils

Samruni Kviku, TM og Lykils Í dag, 30. mars 2021, samþykktu hluthafafundir Kviku banka hf. (,,Kvika“), TM hf. (,,TM“) og Lykils fjármögnunar hf. (,,Lykill“) að sameina félögin þrjú undir nafni og kennitölu Kviku þannig að TM og Lykli verður slitið án skuldaskila og félögin algerlega sameinuð Kviku (samruni með yfirtöku), sbr. 119.gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Samkvæmt samrunaáætlun félaganna, dags. 23. febrúar 2021, skal réttindum og skyldum TM og Lykils reikningslega lokið þann 1. janúar 2021 og tekur Kvika við öllum réttindum og skyldum TM og Lykils frá þeim tíma, þ. á m. skuldabré...

 PRESS RELEASE

Hluthafafundur TM 30. mars 2021 – Endanlegar tillögur og ályktanir

Hluthafafundur TM 30. mars 2021 – Endanlegar tillögur og ályktanir Samkvæmt samþykktum TM hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir hluthafafund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins.  Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests þar um sem var 20. mars sl. Eru endanlegar tillögur og ályktanir vegna hluthafafundar 30. mars 2021 því óbreyttar frá fyrri tilkynningu félagsins 8. mars sl. Allar upplýsingar um hluthafafundinn má nálgast á

 PRESS RELEASE

TM hf. - Niðurstöður aðalfundar 18. mars 2021.

TM hf. - Niðurstöður aðalfundar 18. mars 2021. Á aðalfundi TM hf. í dag, 18. mars 2021, voru samþykktar tillögur um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, starfskjarastefnu félagsins, þóknun til stjórnar, undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar. Að auki var kosinn endurskoðendur fyrir starfsárið 2021. Stjórnin félagsins, sem var sjálfkjörin, hefur skipt með sér verkum. Stjórnin er skipuð sem hér segir: Í aðalstjórn: Örvar Kærnested formaður, Kristín Friðgeirsdóttir varaformaður, Andri Þór Guðmundsson meðstjórnandi, Einar Örn Ólafsson meðstjórnandi og Helga Kristín Auðunsdóttir meðstj...

 PRESS RELEASE

Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar TM hf. á aðalfundi 18. mar...

Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar TM hf. á aðalfundi 18. mars 2021 Framboðsfrestur til stjórnar TM hf. rann út 13. mars 2021. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins: Í aðalstjórn (í stafrófsröð): Andri Þór Guðmundsson, forstjóri, Einar Örn Ólafsson, fjárfestir, Helga Kristín Auðunsdóttir, lögfræðingur LLM, Kristín Friðgeirsdóttir, verkfræðingur Ph.D., og Örvar Kærnested, fjárfestir. Í varastjórn (í stafrófsröð): Bjarki Már Baxter, lögmaður, og Bryndís Hrafnkelsdóttir, forstjóri. Tilnefningarnefnd félagsins lagði til í skýrslu sinni 18. feb...

 PRESS RELEASE

TM hf.: Skilyrt samþykki FME fyrir samruna Kviku, TM og Lykils

TM hf.: Skilyrt samþykki FME fyrir samruna Kviku, TM og Lykils Þann 23. febrúar sl. tilkynnti TM hf. („TM“) að undirrituð hefði verið samrunaáætlun vegna fyrirhugaðs samruna TM, Kviku banka hf. („Kvika“) og Lykils fjármögnunar hf. („Lykill“). Þann 26. febrúar síðastliðinn var svo tilkynnt um að tveir af fjórum fyrirvörum í samrunasamningi félaganna frá 25. nóvember sl. hefðu verið uppfylltir. Eftir stæðu fyrirvarar um samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („FME“) fyrir samrunanum og samþykki hluthafafunda í Kviku, TM og Lykli. Í dag, 9. mars 2021, tilkynnti FME Kviku, TM og Lykli ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch