A1KBCM Eimskipafelag Islands hf

Eimskip - Samningur við Arion banka um viðskiptavakt

Eimskip - Samningur við Arion banka um viðskiptavakt

Eimskip - Samningur við Arion banka um viðskiptavakt

Eimskipafélag Íslands hf.  hefur gert nýjan samning við Arion banka um viðskiptavakt. Arion Banki mun dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að stuðla að því að seljanleiki hlutabréfa útgefanda aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með sem skilvirkustum og gagnsæjustum hætti.

Arion banki skal leggja fram kaup- og sölutilboð sem varða að lágmarki 30.000 hluti í útgefanda, á gengi sem Arion banki ákveður. Tilboðin skulu vera í tveimur pörtum þannig að verðbil kaup- og sölutilboða sem varða 28.500 hluti skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki lægra en 1,45%. Verðbil kaup- og sölutilboða sem varða 1.500 hluti skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði ekki hærra en 1,50%. Þó skal Arion banka vera heimilt að setja fram kaup- og sölutilboð í bæði A legg og B legg með lægra verðbili en að framan greinir, t.d. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Eigi Arion banki innan sama viðskiptadags viðskipti með hluti útgefanda, sem fara í gegnum veltubók Arion banka (markaðsvakt bankans), sem nema samtals 240.000 hluti að nafnvirði eða meira, falla niður framangreindar skyldur Arion banka um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting á hlutabréfum útgefanda innan viðskiptadags er umfram 5% er Arion banka heimilt að tvöfalda framangreind verðbil og ef verðbreyting á hlutabréfunum er umfram 10% er Arion banka heimilt að þrefalda þau.

Samningurinn gildir frá og með 5. mars 2026 og er ótímabundinn en samningsaðilum er heimilt að segja honum upp með 14 daga fyrirvara.

Frekari upplýsingar

Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími 844 4752, netfang:







EN
05/03/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eimskipafelag Islands hf

 PRESS RELEASE

Eimskip – Market making agreement with Arion

Eimskip – Market making agreement with Arion Eimskipafélag Íslands hf. has entered into a new agreement with Arion Bank regarding market making. Arion Bank will, on a daily basis, submit bid and ask offers for the company’s shares in the Nasdaq Iceland trading system. The purpose of the market‑making agreement is to promote increased liquidity in the issuer’s shares, help establish a market price, and ensure that price formation for the shares is as efficient and transparent as possible. Arion Bank shall submit bid and ask offers for a minimum of 30,000 shares in the issuer, at prices dete...

 PRESS RELEASE

Eimskip - Samningur við Arion banka um viðskiptavakt

Eimskip - Samningur við Arion banka um viðskiptavakt Eimskip - Samningur við Arion banka um viðskiptavakt Eimskipafélag Íslands hf.  hefur gert nýjan samning við Arion banka um viðskiptavakt. Arion Banki mun dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að stuðla að því að seljanleiki hlutabréfa útgefanda aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með sem skilvirkustum og gagnsæjustum hætti. Arion banki skal leggja fram kaup- og sölutilboð sem varða að lágmarki 30.000 hluti í útgef...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Annual General Meeting 26 March 2026

Eimskip: Annual General Meeting 26 March 2026 The Board of Directors of Eimskipafélag Íslands hf. hereby announces that the Annual General Meeting of the company will be held on Thursday 26 March 2026 at 15:00 at the company's headquarters, Sundabakki 2, Reykjavík, Iceland. Enclosed is the convocation, proposed agenda and proposed resolutions for the Annual General Meeting along with Remuneration Policy and Report of the Remuneration Committee. Shareholders can access all meeting documents at the . Attachments ...

 PRESS RELEASE

Eimskip: Aðalfundur 26. mars 2026

Eimskip: Aðalfundur 26. mars 2026 Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 15:00 í höfuðstöðvum félagsins að Sundabakka 2, 104 Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð, drög að dagskrá og tillögum fundarins ásamt starfskjarastefnu og skýrslu starfskjaranefndar. Öll gögn vegna aðalfundar er að finna á . Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eimskip: Consolidated financial statements and Annual & sustainability...

Eimskip: Consolidated financial statements and Annual & sustainability report for 2025 Eimskip has today published its audited consolidated financial statements for 2025. On 28 January 2026, Eimskip published a management financial report including the fourth quarter and full year 2025 results. In addition, Eimskip is publishing the Annual & sustainability report for 2025. The audited Consolidated financial statements can be found here: The Annual & Sustainability Report can be found here: Attachments

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch