Eimskip: Skráð lækkun hlutafjár, heildarfjöldi hluta og atkvæða
Á aðalfundi Eimskips þann 26. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum skv. endurkaupaáætlun um kr. 2.300.000 að nafnverði, með lækkun á eigin hlutum félagsins, að uppfylltum skilyrðum laga um hlutafélög.
Lögmælt skilyrði fyrir lækkun hafa nú verið uppfyllt og hefur lækkunin verið skráð í Fyrirtækjaskrá Skattsins. Beiðni um lækkun hefur verið send Nasdaq CSD og mun lækkunin verða framkvæmd fimmtudaginn 16. apríl 2026. Fyrsti dagur viðskipta eftir lækkun eigin bréfa verður því 16. apríl 2026 og vísast einnig til markaðstilkynningar sem Nasdaq Iceland mun gefa út um lækkunina.
Hlutafé félagsins er því kr. 163.400.000 að nafnverði og hver hlutur er ein króna. Eigin hlutir eru kr. 1.675.000 og heildarfjöldi atkvæða því kr. 161.725.000
