Eik fasteignafélag hf.: Birting ársuppgjörs þann 17. febrúar - Rafrænn kynningarfundur 18. febrúar
Eik fasteignafélag hf. mun birta ársuppgjör 2021 eftir lokun markaða fimmtudaginn 17. febrúar nk.
Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 18. febrúar nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu ársuppgjörsins.
