EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð

Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266.

Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseininga skuldabréfaflokka skuldabréfaflokkana, sem eru 20 m.kr. í báðum tilvikum, kann þó að myndast uppgjörsmismunur, m.a. vegna verðs eða uppsafnaðra vaxta sem verður jafnaður með reiðufé við uppgjör. Félagið mun að hámarki selja skuldabréf fyrir 1.500 m.kr. að nafnvirði í útboðinu.

Hreint verð í skiptiútboðinu er 100,00, sem samsvarar 2,72% ávöxtunarkröfu miðað við uppgjör þann 4. mars 2026

Skuldabréfaflokkurinn EIK 120266 er óuppgreiðanlegur, ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur afborgana og vaxta á sex (6) mánaða fresti, með lokagjalddaga 2066.

Fyrirkomulag útboðsins verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfu. Eik áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.

Skuldabréfaflokkurinn deilir veðsafni með áður útgefnum skuldabréfaflokkum félagsins EIK 050726, EIK 050749, EIK 161047, EIK 100346, EIK 100327, EIK 141233, EIK 050734 og EIK 150536, auk tiltekinna lána frá fjármálastofnunum.

Áætlaður uppgjörsdagur skuldabréfaútboðsins er 4. mars 2026.

Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið: fyrir kl. 16:00 þann 25. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar veitir:

Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, , s. 820-8980



EN
19/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningar. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar ...

Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2026. Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi. Ekki hafa verið gerðar breytingar á dagskrá eða tillögum fyrir fundinn sem birtar voru með tilkynningu félagsins 24. mars 2026. Fundargögn eru á heimasíðu félagsins á slóðinni: . Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að forskrá sig tímanlega á eftirfarandi vefslóð: en opnað verður fyrir forskráningu miðvikudaginn 8. apríl 2026. Atkv...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstök...

Eik fasteignafélag hf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum EIK 100346, EIK 100327, EIK 161047, EIK 050749, EIK 050726, EIK 050734, EIK 141233 og EIK 150536 PricewaterhouseCoopers ehf. („PwC“) hefur staðfest að skuldabréfaflokkarnir EIK 100346, EIK 100327, EIK 161047, EIK 050749, EIK 050726, EIK 050734, EIK 141233, EIK 150536 standast öll fjárhagsleg- og tryggingarleg skilyrði skuldabréfaflokkanna miðað við dagsetninguna 31.12.2025. Sem eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna hefur PwC m.a. það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefenda á sérstökum s...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á nýjum flokki skuldabréfa, EIK 150531, fyrir samtals 3.980 m.kr. á 4,00% ávöxtunarkröfu. Í flokkinn EIK 150531 bárust 13 tilboð að fjárhæð 4.940 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,83-4,05%. Tilboðum að nafnvirði 3.980 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 4,00%. FlokkurEIK 150531Greiðslu- og uppgjörsdagur7.4.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)3.980Samþykkt (ávöxtunarkrafa)4,00%Fjöldi innsendra tilboða13Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)4.940Fjöldi samþykktra tilboða...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2026

Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2026 Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi. Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar félagsins auk tillagna stjórnar, skýrslu tilnefningarnefndar og annarra skjala sem varða aðalfundinn. Vakin er athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirkomulag rafrænnar forskráningar sem og á tillögum um breytingar á starfskjarastefnu félagsins, samþykktum félagsins ásamt kaupréttaráætlun og kaupréttarkerfi stjórnenda. Jafnframt er vakin sérstök athygli ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch