Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs fyrstu sex mánaða ársins 2022 þann 25. ágúst. Kynningarfundur 26. ágúst
Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrstu sex mánaða ársins 2022 eftir lokun markaða fimmtudaginn 25. ágúst nk.
Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 26. ágúst nk. kl. 8:30 í fundarsalnum Hlíðaberg á Hótel Kea, Akureyri. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00. Fundurinn verður einnig á rafrænu formi.
Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins.
