Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2026
Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.
Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar félagsins auk tillagna stjórnar, skýrslu tilnefningarnefndar og annarra skjala sem varða aðalfundinn. Vakin er athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirkomulag rafrænnar forskráningar sem og á tillögum um breytingar á starfskjarastefnu félagsins, samþykktum félagsins ásamt kaupréttaráætlun og kaupréttarkerfi stjórnenda. Jafnframt er vakin sérstök athygli á meðfylgjandi bréfi forstjóra til hluthafa.
, sem inniheldur ársreikning 2025, hefur þegar verið birt og er aðgengileg á heimasíðu félagsins ásamt öðrum fundargögnum.
Viðhengi
