Eik fasteignafélag hf.: Breytingar á stjórn fyrirséðar – tilnefningarnefnd kallar eftir framboðum
Í tengslum við undirbúning aðalfundar 2022 hafa Eyjólfur Árni Rafnsson og Kristín Friðgeirsdóttir upplýst tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf. um að þau hyggist ekki bjóða sig fram í stjórn félagsins.
Tilnefningarnefnd minnir á að nefndin ráðgerir að fjalla aðeins um tillögur hluthafa og framboð til stjórnar sem berast fyrir lok dags 4. febrúar 2022.
