Eik fasteignafélag hf.: Framboð í tilnefningarnefnd 2025. Skráning á aðalfund.
Eftirtalin hafa boðið sig fram í tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf., en framboðsfrestur rann út 5. apríl 2025:
- Anton Reynir Hafdísarson
- Áslaug Eva Björnsdóttir
- Íris Björk Hreinsdóttir
- Sigurður Ólafsson
Samþykktir félagsins gera ráð fyrir að tveir nefndarmenn séu kjörnir af hluthöfum. Stjórn tilnefndi Sigrúnu Rögnu Ólafsdóttur að loknum aðalfundi 2024 í tilnefningarnefnd til tveggja ára. Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi.
Fundurinn verður haldinn kl. 14:00 fimmtudaginn 10. apríl 2025 að Sjálandi, Ránargrund 4, 210 Garðabæ, en atkvæðagreiðslur verða einungis rafrænar.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni og ekki seinna en kl. 16:00 miðvikudaginn 9. apríl 2025. Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á
Viðhengi
