Eik fasteignafélag hf.: Framboð í tilnefningarnefnd. Skráning á aðalfund.
Eftirtalin hafa boðið sig fram í tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf., en framboðsfrestur rann út 31. mars 2022:
- Drífa Sigurðardóttir
- Ingólfur Bender
Samþykktir félagsins gera ráð fyrir að tveir nefndarmenn séu kjörnir af hluthöfum. Stjórn tilnefnir einn einstakling í nefndina að loknum hluthafafundi. Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi.
Fundurinn verður haldinn kl. 16:00 þriðjudaginn 5. apríl 2022 í salnum Gullteig A á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 28, 105 Reykjavík, en atkvæðagreiðslur verða einungis rafrænar.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum, hvort sem er rafrænt eða í eigin persónu, eru minntir á að skrá sig sem fyrst á heimasíðunni /meeting/eik.
Viðhengi
