EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður yfirtökutilboðs Langasjávar ehf. til hluthafa Eikar fasteignafélags hf.

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstöður yfirtökutilboðs Langasjávar ehf. til hluthafa Eikar fasteignafélags hf.

Þann 20. september 2024 gerði Langisjór ehf. („tilboðsgjafi“) hluthöfum Eikar fasteignafélags hf. („Eik“) yfirtökutilboð í skilningi X. og XI. kafla laga nr. 108/2007 um yfirtökur („lög um yfirtökur“), með þeim skilmálum og skilyrðum sem fram komu í opinberu tilboðsyfirliti dagsettu sama dag („tilboðið“). Gildistími tilboðsins rann út kl. 13:00 þann 18. október 2024. Samþykki barst fyrir alls 247.190 hlutum í Eik. Samkeppniseftirlitið tilkynnti tilboðsgjafa þann 14. október 2024 að ekki væri um tilkynningarskyldan samruna að ræða. Greiðsla til þeirra sem samþykktu tilboðið og afhending hluta til tilboðsgjafa fer fram í síðasta lagi 25. október 2024.

Á þeim degi sem tilboðið var sett fram fóru tilboðsgjafi og samstarfsaðilar með 1.106.281.964 hluti í Eik sem samsvarar 32,31% af hlutafé félagsins. Eftir tilboðið fara tilboðsgjafi og samstarfsaðilar með 1.106.529.154 hluti í Eik sem samsvarar 32,32% af hlutafé félagsins.

Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Langasjávar ehf.:

Við hefðum gjarnan viljað eignast fleiri bréf í Eik í aðdraganda yfirtökutilboðsins og í tilboðsferlinu sjálfu. Yfirtökutilboðið var hins vegar einungis fyrsta skrefið í vegferð Langasjávar að auka áhrif sín og eignarhald í Eik. Það lá lengi fyrir að Langisjór og samstarfsaðilar væru nálægt því að fara yfir 30% eignarhlut í Eik og þyrftu þannig að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð. Nú er Langasjó frjálst að eignast meirihluta í félaginu án þess að endurtaka það ferli. Hvenær og á hvern hátt Langisjór eykur við hlut sinn í Eik mun fara eftir markaðsaðstæðum og öðrum fjárfestingartækifærum sem bjóðast.

Gengi Eikar hafði sveiflast í kringum 10 krónur á hlut lengstan hluta þessa árs þegar það tók nokkurn kipp í litlum viðskiptum strax eftir birtingu hálfsársuppgjörs félagsins þann 15. ágúst. Til stóð að Langisjór myndi bæta við sig eignarhlut með því að kaupa hlutabréf í utanþingsviðskiptum helgina eftir birtingu árshlutauppgjörs. Það gekk ekki eftir og þar eftir hækkaði gengi félagsins enn frekar eftir að yfirtökutilboð var lagt fram þannig að markaðsverð á hlutabréfum Eikar var orðið nokkuð hærra en tilboðsverð þegar yfir lauk.

Á tilboðstímanum höfum við haft tækifæri til að eiga marga uppbyggilega fundi með stærstu hluthöfum Eikar. Þann vettvang höfum við nýtt til að ræða sýn okkar á uppbyggingu, skipulag og framtíðarhorfur félagsins við meðeigendur. Við finnum góðan samhljóm hjá þeim við þau áhersluatriði okkar að hagræða í eignasafni Eikar, auka arðgreiðslur og skuldsetningu félagsins. Þessi samstilling í hluthafahópi félagsins gefur okkur tækifæri til að horfa björtum augum fram á veginn þar sem hagsmunir hluthafa fara saman við vegferð Eikar.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var umsjónaraðili yfirtökutilboðsins fyrir hönd tilboðsgjafa og veitti BBA // Fjeldco tilboðsgjafa lögfræðilega ráðgjöf í tilboðsferlinu.



EN
18/10/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða skiptiútboðs 25. febrúar 2026 Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk skiptiútboði á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026, þar sem boðinn var til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. FlokkurEIK 120266Greiðslu- og uppgjörsdagur04.03.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)1.200Samþykkt (ávöxtunarkrafa)3,80%Fjöldi innsendra tilboða2Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)1.200Fjöldi samþykktra tilboða2Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,78%Boðhlutfall1,00 Alls bárust gild tilboð að nafnverði 1.200 m.kr., og var ákveðið að taka til...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútb...

Eik fasteignafélag hf.: Útboð skuldabréfa 25. febrúar 2026 – skiptiútboð Eik fasteignafélag hf. („Eik“) efnir til útboðs á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Í útboðinu verður boðinn til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266. Útboðið er skiptiútboð, þar sem eigendum skuldabréfaflokksins EIK 050726 býðst að skipta bréfum sínum í þeim flokki fyrir kaup á skuldabréfum í útboðinu, þ.e. EIK 120266. Greiðsla vegna útboðsins fer því eingöngu fram með afhendingu skuldabréfa í flokknum EIK 050726 á móti skuldabréfum í EIK 120266 og er greiðsla með reiðufé ekki í boði. Vegna nafnverðseinin...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 20,000,000 shares at 14.200ISK and the significance rating of the trade was 67/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two y...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar

Eik fasteignafélag hf.: Flöggun - Langisjór ehf. og samstarfsaðilar Flöggunartilkynning er í viðhengi.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda

Eik fasteignafélag hf.: Viðskipti nákomins aðila stjórnanda Sjá meðfylgjandi tilkynningu.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch