EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu þrjá mánuði ársins 2023

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu þrjá mánuði ársins 2023

  • Rekstrartekjur námu 2.702 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 1.760 m.kr.
  • Heildarhagnaður nam 1.122 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 1.259 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 124.020 m.kr.
  • Bókfært virði eigna til eigin nota nam 4.134 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 2.008 m.kr.
  • Handbært fé nam 3.060 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 72.401 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall nam 32,2%.
  • Hagnaður á hlut var 0,33 kr.
  • Virðisútleiguhlutfall var 95,2%
  • Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,03%
  • Vegnir óverðtryggðir vextir námu 7,64%

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2023 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 27. apríl 2023.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu þriggja mánaða ársins ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.

Rekstur félagsins

Rekstur félagsins gekk vel á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 og var afkoman yfir áætlunum stjórnenda félagsins. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 námu 2.702 m.kr. Þar af voru leigutekjur 2.309 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 1.760 m.kr. og jókst um rúmlega 19% á milli ára. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 1.403 m.kr. og heildarhagnaður samstæðunnar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 nam 1.122 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum) nam 73,6% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 samanborið við 73,5% fyrir sama tímabil 2022.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem voru um 2.008 m.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 133.178 m.kr. þann 31. mars 2023. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 124.020 m.kr. sem skiptast í fjárfestingareignir í útleigu að fjárhæð 119.448 m.kr., leigueignir 2.750 m.kr., fjárfestingareignir í þróun 1.157 m.kr., byggingarréttir og lóðir 652 m.kr. og fyrirframgreidd gatnagerðargjöld að fjárhæð 13 m.kr. Eignir til eigin nota námu 4.134 m.kr. og fasteignir í þróun 673 m.kr. Eigið fé félagsins nam 42.866 m.kr. í lok tímabilsins og var eiginfjárhlutfall 32,2%. Á aðalfundi félagsins þann 30. mars 2023 var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2022 að fjárhæð 2.000 m.kr. og var hann greiddur þann 12. apríl 2023.

Heildarskuldir félagsins námu 90.312 m.kr. þann 31. mars 2023. Þar af voru vaxtaberandi skuldir 72.401 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 10.964 m.kr. 

Virðisútleiguhlutfall

Virðisútleiguhlutfall félagsins var 95,2% í lok tímabilsins en var 95,7% um áramótin.

Eignasafn félagsins

Það sem af er ári hefur félagið keypt og fengið afhent hluta af Síðumúla 20 og 22 sem telja samanlagt rúmlega 620 fermetra og þar með á félagið alla eignarhluta í byggingunni. Þá keypti félagið eignarhaldsfélagið BB29 ehf. en félagið á eignina við Ármúla 2, sem er 3.544 fermetra skrifstofuhúsnæði með langtímaleigusamning við Samgöngustofu.    

Fasteignir innan samstæðunnar eru nú í kringum 110 talsins og telja rúmlega 316 þúsund útleigufermetra í rúmlega 600 leigueiningum. Heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu fasteignir félagsins á höfuðborgarsvæðinu eru Borgartún 21 og 21a, Borgartún 26, Suðurlandsbraut 8 og 10, Mýrargata 2-16, Pósthússtræti 2 (Hótel 1919), Smáratorg 3 (Turninn), Smáratorg 1, Álfheimar 74 (Nýi Glæsibær), Grjótháls 1-3 og Austurstræti 5, 6, 7 og 17. Helsta fasteign félagsins utan höfuðborgarsvæðisins er Glerártorg, Akureyri. Stærstu leigutakar félagsins eru Húsasmiðjan, Flugleiðahótel, Landsbankinn, Sýn, Össur, Bónus, Deloitte, Rúmfatalagerinn, Samkaup og Ríkiseignir.

Stærsti hluti fasteignasafns félagsins er skrifstofuhúsnæði eða 42%. Næst koma verslunarhúsnæði 24%, lagerhúsnæði 14%, hótel 9%, heilsutengt húsnæði 7% og veitinga- og skemmtistaðir 3%. Um 93% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 39% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108), 17% í miðbæ Reykjavíkur og 18% í Smáranum - Mjódd. 7% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af rúmlega 6% á Akureyri.

Horfur

Áætlað er að kaupin á Ármúla 2 og Síðumúla 20-22 hafi u.þ.b. 75 m.kr. áhrif á EBITDA ársins til hækkunar.

Félagið hefur því uppfært horfur sínar fyrir árið 2023 vegna þeirra breytinga sem hafa orðið á eignasafninu og útleigu. Miðað við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í apríl 2023 gerir félagið ráð fyrir að EBITDA ársins verði á bilinu 7.030-7.230 m.kr. á föstu verðlagi út árið. Leiðrétt fyrir þeim verðlagsbreytingum sem hafa átt sér stað frá birtingu áætlunar og umræddum kaupum er um að ræða u.þ.b. 110 m.kr. hækkun á áætlun.

Rafrænn kynningarfundur

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 28. apríl 2023 klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Skráning á fundinn fer fram hér:

Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.

Breytt fjárhagsdagatal

Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum:



Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 2023                                    17. ágúst 2023

Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 2023                                    26. október 2023

Ársuppgjör 2023                                                                    15. febrúar 2024

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Vakin er athygli á breyttri dagsetningu ársuppgjörs 2023.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, , s. 590-2200

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, , s. 820-8980

Viðhengi



EN
27/04/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt við Kviku...

Eik fasteignafélag hf.: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt við Kviku banka Eik fasteignafélag hf. (Eik) hefur endurnýjað samning sinn við Kviku banka hf. (Kvika) um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland (Kauphöllin). Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf Eikar í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Kaup- og sölutilboð skulu vera að lágmarki 1.000.000 hlutir að nafnvirði á gengi sem Kvika ákveður hverju sinni. Tilboðin skulu lögð fram í tveimur hlutum. Annars ...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt við Arion...

Eik fasteignafélag hf.: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt við Arion banka Eik fasteignafélag hf. (Eik) hefur endurnýjað samning sinn við Arion banka hf. (Arion) um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland (Kauphöll). Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf Eikar í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Kaup- og sölutilboð skulu vera að lágmarki 1.000.000 hlutir að nafnvirði á gengi sem Arion ákveður hverju sinni. Tilboðin skulu lögð fram í tveimur hlutum. Annars ve...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Fjárhagsdagatal 2026

Eik fasteignafélag hf.: Fjárhagsdagatal 2026 Eik fasteignafélag hf. stefnir að birtingu árs- og árshlutauppgjöra ásamt aðalfundi á eftirfarandi dagsetningum: 5. febrúar 2026 – Stjórnendauppgjör 2025 og áætlun 2026 12. mars 2026 – Ársuppgjör, ársskýrsla og sjálfbærniskýrsla 2025 16. apríl 2026 – Aðalfundur 2026 7. maí 2026 – 1. ársfjórðungur 2026 18. ágúst 2026 – 2. ársfjórðungur 2026 5. nóvember 2026 – 3. ársfjórðungur 2026 4. febrúar 2027 – Stjórnendauppgjör 2026 og áætlun 2027 5. mars 2027 – Ársuppgjör, ársskýrsla og sjálfbærniskýrsla 2026 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér ...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf: Skráning skuldabréfaflokksins EIK 150536

Eik fasteignafélag hf: Skráning skuldabréfaflokksins EIK 150536 Eik fasteignafélag hf. hefur birt lýsingu dagsetta 27. nóvember 2025. Lýsingin samanstendur af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknum EIK 150536 verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland. Lýsingin hefur verið staðfest af fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. BBA Fjeldco og Arctica Finance höfðu umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokksins til viðskipta. Lýsing...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 16,184,400 shares at 13.743ISK and the significance rating of the trade was 100/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch