EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Sala á nýjum skuldabréfaflokki EIK 150536

Eik fasteignafélag hf.: Sala á nýjum skuldabréfaflokki EIK 150536

Eik fasteignafélag hf. hefur gefið út nýjan skuldabréfaflokk, EIK 150536, sem er verðtryggður flokkur með lokagjalddaga 15. maí 2036 og er hámarksstærð flokksins 10.000 milljónir króna. Félagið hefur nú lokið sölu á 4.000 milljónum króna í skuldabréfaflokknum og bera skuldabréfin 3,8% nafnvexti og var bréfið selt á 3,86% ávöxtunarkröfu. Endurgreiðsla skuldabréfaflokksins fylgir 30 ára jafngreiðsluferli (annuity) fram til lokagjalddaga þegar allar eftirstöðvar höfuðstóls greiðast í einni greiðslu en greiðslur vaxta og höfuðstóls fara fram á sex mánaða fresti. Flokkurinn mun deila veðsafni með þegar útgefnum skuldabréfaflokkum félagsins og verður fjárhæðin nýtt til endurfjármögnunar annarra skulda.

Gert er ráð fyrir að uppgjör viðskiptanna fari fram 10. febrúar næstkomandi og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Ísland síðar á árinu.

Arctica Finance hafði umsjón með viðskiptunum.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, á netfanginu  eða í síma 820-8980.



EN
03/02/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt við Kviku...

Eik fasteignafélag hf.: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt við Kviku banka Eik fasteignafélag hf. (Eik) hefur endurnýjað samning sinn við Kviku banka hf. (Kvika) um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland (Kauphöllin). Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf Eikar í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Kaup- og sölutilboð skulu vera að lágmarki 1.000.000 hlutir að nafnvirði á gengi sem Kvika ákveður hverju sinni. Tilboðin skulu lögð fram í tveimur hlutum. Annars ...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt við Arion...

Eik fasteignafélag hf.: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt við Arion banka Eik fasteignafélag hf. (Eik) hefur endurnýjað samning sinn við Arion banka hf. (Arion) um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland (Kauphöll). Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf Eikar í því skyni að markaðsverð skapist á þeim og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Kaup- og sölutilboð skulu vera að lágmarki 1.000.000 hlutir að nafnvirði á gengi sem Arion ákveður hverju sinni. Tilboðin skulu lögð fram í tveimur hlutum. Annars ve...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Fjárhagsdagatal 2026

Eik fasteignafélag hf.: Fjárhagsdagatal 2026 Eik fasteignafélag hf. stefnir að birtingu árs- og árshlutauppgjöra ásamt aðalfundi á eftirfarandi dagsetningum: 5. febrúar 2026 – Stjórnendauppgjör 2025 og áætlun 2026 12. mars 2026 – Ársuppgjör, ársskýrsla og sjálfbærniskýrsla 2025 16. apríl 2026 – Aðalfundur 2026 7. maí 2026 – 1. ársfjórðungur 2026 18. ágúst 2026 – 2. ársfjórðungur 2026 5. nóvember 2026 – 3. ársfjórðungur 2026 4. febrúar 2027 – Stjórnendauppgjör 2026 og áætlun 2027 5. mars 2027 – Ársuppgjör, ársskýrsla og sjálfbærniskýrsla 2026 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér ...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf: Skráning skuldabréfaflokksins EIK 150536

Eik fasteignafélag hf: Skráning skuldabréfaflokksins EIK 150536 Eik fasteignafélag hf. hefur birt lýsingu dagsetta 27. nóvember 2025. Lýsingin samanstendur af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknum EIK 150536 verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland. Lýsingin hefur verið staðfest af fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. BBA Fjeldco og Arctica Finance höfðu umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokksins til viðskipta. Lýsing...

Eik Fasteignafelag hf: 1 director

A director at Eik Fasteignafelag hf bought 16,184,400 shares at 13.743ISK and the significance rating of the trade was 100/100. Is that information sufficient for you to make an investment decision? This report gives details of those trades and adds context and analysis to them such that you can judge whether these trading decisions are ones worth following. Included in the report is a detailed share price chart which plots discretionary trades by all the company's directors over the last two ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch