Eik fasteignafélag hf.: Stjórnarframboð dregið til baka. Kallað eftir framboðum.
Reynir Sævarsson hefur dregið til baka framboð sitt til stjórnar í Eik fasteignafélagi hf. en hann er einn þeirra einstaklinga sem tilnefningarnefnd lagði til að yrði kjörinn í stjórn á aðalfundi.
Fresti til að tilkynna um framboð til stjórnar á netfangið lýkur sjö sólarhringum fyrir aðalfund, nánar tiltekið kl. 16.00 þriðjudaginn 29. mars 2022.
Tilnefningarnefnd hefur hug á því að fjalla um framboð sem berast fyrir lok sunnudagsins 20. mars 2022.
