EIK Eik fasteignafelag hf

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnendauppgjör vegna ársins 2025 og áætlun ársins 2026

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnendauppgjör vegna ársins 2025 og áætlun ársins 2026

Rekstur Eikar fasteignafélags („Eik“ eða „félagið“) gekk vel á árinu 2025 og hélt kröftugur vöxtur í tekjum og EBITDA sér í takti við áætlanir. Samkvæmt stjórnendauppgjöri nam EBITDA ársins 7.901 m.kr. og jókst hún um 7,6% á milli ára.

Helstu niðurstöður stjórnendauppjörs fyrir árið 2025 eru:

  • Rekstrartekjur námu 12.586 m.kr.
  • Leigutekjur námu 10.865 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 7.901 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna nam 5.352 m.kr.
  • Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 134 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 4.962 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 172.760 m.kr.
  • Skuldsetningarhlutfall (nettó vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna, lóða og byggingarheimildina) nam 58,9%.
  • Virðisútleiguhlutfall nam 94,7%.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 104.210 m.kr.
  • Vegnir verðtryggðir vextir fjármögnunar félagsins námu 3,71%.
  • Vegnir óverðtryggðir vextir fjármögnunar félagsins námu 9,55%.

Eik fékk Festingu hf. afhent seinni part desember mánaðar, en fasteignir Festingar eru um 43.000 fm. að stærð og hýsa starfsemi Samskipa hf. á Íslandi. Heildarvirði Festingar í kaupunum (e. Enterprice Value) var 15.070 m.kr. Félagið nýtti efnahagsreikning sinn og fjármagnaði kaupin að fullu með yfirtöku lána og nýrri bankafjármögnun. Við kaupin hækkuðu vegin fjármögnunarkjör félagsins lítillega, en félagið nýtti sveigjanlegar fjármögnunarleiðir við kaupin. Kaupin styrkja tekjugrunn Eikar með 20 ára verðtryggðum samningnum.

Handbært fé frá rekstri nam 4.962 m.kr. á árinu. M.v. niðurstöðu stjórnendauppgjörs og að teknu tilliti til arðgreiðslustefnu félagsins má vænta að tillaga um arðgreiðslu vegna ársins 2025 verði u.þ.b. 1,1 kr. pr útistandandi hlut samanborið við 1,0 kr. pr. hlut vegna ársins 2024.

Áætlun ársins 2026

Eik spáir áframhaldandi kröftugum vexti leigutekna og EBITDA eftir stækkun eignasafnsins með kaupum á Festingu hf.

Hér koma upplýsingar um helstu stærðir úr áætlun félagsins á föstu verðlagi miðað við vísitölu neysluverðs í janúar 2026:

  • Rekstrartekjur á bilinu 12.055 – 12.545 m.kr.
  • Leigutekjur á bilinu 10.375 – 10.800 m.kr.
  • EBITDA á bilinu 7.620 – 7.940 m.kr.
  • Fjárfestingar í núverandi eignum og eignfærðar endurbætur á bilinu 2.500 – 3.000 m.kr.
  • Gjaldfært viðhald um 280 mkr.
  • Virðisútleiguhlutfall 94,5 – 95,5% í lok árs 2026.

Í meðfylgjandi kynningu eru frekari upplýsingar um stjórnendauppgjör Eikar og forsendur áætlunar vegna ársins 2026. Vakin er athygli á að um er að ræða óendurskoðað stjórnendauppgjör sem kann að taka breytingum fram að birtingu ársuppgjörs og ársskýrslu félagsins þann 12. mars nk.

Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 6. febrúar 2026 klukkan 8:30 á skrifstofu félagsins á 18. hæð í Smáratorgi 3, Kópavogi. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8.00.

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna stjórnendauppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Fundinum verður einnig streymt á netinu og fer skráning á rafræna fundinn fram hér:

Nánari upplýsingar veita:

Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri, ,  s. 856-5907

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT,  s. 820 8980

Viðhengi



EN
05/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Eik fasteignafelag hf

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Leiðrétting - Stjórnendauppgjör vegna ársins 2...

Eik fasteignafélag hf.: Leiðrétting - Stjórnendauppgjör vegna ársins 2025 og áætlun ársins 2026 Í fyrri tilkynningu félagsins var ósamræmi á milli talna í umfjöllun um áætlun 2026 í tilkynningunni sjálfri og stjórnendauppgjöri sem fylgdi með. Tölur hafa verið leiðréttar í neðangreindri tilkynningu en upplýsingar í stjórnendauppgjöri eru óbreyttar. Rekstur Eikar fasteignafélags („Eik“ eða „félagið“) gekk vel á árinu 2025 og hélt kröftugur vöxtur í tekjum og EBITDA sér í takti við áætlanir. Samkvæmt stjórnendauppgjöri nam EBITDA ársins 7.901 m.kr. og jókst hún um 7,6% á milli ára. Helstu...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnendauppgjör vegna ársins 2025 og áætlun ...

Eik fasteignafélag hf.: Stjórnendauppgjör vegna ársins 2025 og áætlun ársins 2026 Rekstur Eikar fasteignafélags („Eik“ eða „félagið“) gekk vel á árinu 2025 og hélt kröftugur vöxtur í tekjum og EBITDA sér í takti við áætlanir. Samkvæmt stjórnendauppgjöri nam EBITDA ársins 7.901 m.kr. og jókst hún um 7,6% á milli ára. Helstu niðurstöður stjórnendauppjörs fyrir árið 2025 eru: Rekstrartekjur námu 12.586 m.kr.Leigutekjur námu 10.865 m.kr.Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 7.901 m.kr.Matsbreyting fjárfestingareigna nam 5.352 m.kr.Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 134 m.kr....

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Birting stjórnendauppgjörs 2025 og áætlun ársi...

Eik fasteignafélag hf.: Birting stjórnendauppgjörs 2025 og áætlun ársins 2026 á fimmtudag Eik fasteignafélag hf. mun birta óendurskoðað stjórnendauppgjör vegna ársins 2025 og áætlun ársins 2026 eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. febrúar nk. Kynningarfundur verður haldinn á skrifstofu félagsins að Smáratorgi 3, 18. hæð, 6. febrúar nk. klukkan 8:30. Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, munu kynna stjórnendauppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá klukkan 8:00. Fundinum verður einnig st...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Auglýst eftir tilnefningum eða framboðum til s...

Eik fasteignafélag hf.: Auglýst eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar Tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf. auglýsir hér með eftir tillögum hluthafa að frambjóðendum til stjórnarkjörs sem og framboðum annarra til stjórnar vegna aðalfundar félagsins sem stendur til að halda 16. apríl 2026. Í störfum sínum skal nefndin hafa heildarhagsmuni allra hluthafa félagsins að leiðarljósi og hvetur tilnefningarnefnd því hluthafa til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við nefndina. Hlutverk tilnefningarnefndar er að vera ráðgefandi við kosningu stjórnarmanna og markmið hennar er að skap...

 PRESS RELEASE

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa

Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa Eik fasteignafélag hf. lauk í dag útboði á nýjum flokki skuldabréfa, EIK 120266. Í flokkinn EIK 120266 bárust 9 tilboð að fjárhæð 3.700 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,75-3,99%. Tilboð að nafnvirði 2.500 m.kr. voru samþykkt á ávöxtunarkröfunni 3,90%. FlokkurEIK 12 0266Greiðslu- og uppgjörsdagur12.2.2026Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.)2.500Samþykkt (ávöxtunarkrafa)3,90%Fjöldi innsendra tilboða9Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.)3.700Fjöldi samþykktra tilboða7Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa)3,...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch