GRND Brim

Brim hf. – Niðurstöður aðalfundar 25. mars 2021

Brim hf. – Niðurstöður aðalfundar 25. mars 2021

Brim hf. – Niðurstöður aðalfundar 25. mars 2021

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.



Fundurinn samþykkti eftirtaldar tillögur:

Tillaga um greiðslu arðs

Samþykkt að arðgreiðsla á árinu 2021 vegna rekstrarársins 2020 verði 1,2 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 2.305 millj. kr. (um 14,8 millj. evra á lokagengi ársins 2020), eða 2,4% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2020. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2021. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 25. mars 2021 og arðleysisdagur því 26. mars 2021. Arðsréttindadagur er 29. mars 2021. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.

Tillaga um starfskjarastefnu

Samþykkt óbreytt starfskjarastefna

Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna

Samþykkt að þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 310.000 kr. á mánuði, varaformaður fái einn og hálfan hlut og formaður tvöfaldan hlut.

Kosning stjórnar félagsins

Stjórn var sjálfkjörin þar sem frambjóðendur voru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem kjósa á um á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll.

Stjórnina skipa: Anna G. Sverrisdóttir, Hjálmar Þ. Kristjánsson, Kristján Þ. Davíðsson, Kristrún Heimisdóttir og Magnús Gústafsson. Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í nefndir. Formaður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar er Anna G. Sverrisdóttir.

Endurskoðunarnefnd: Gunnar Ásgeirsson formaður, Anna G. Sverrisdóttir og Kristrún Heimisdóttir. Starfskjaranefnd: Magnús Gústafsson formaður, Kristján Þ. Davíðsson og Kristrún Heimisdóttir. Þóknun nefndarmanna í undirnefndum næsta starfsár verður 110.000 kr. á mánuði.

Kosning endurskoðenda

Samþykkt að endurskoðandi félagsins fyrir árið 2021 verði Deloitte ehf.

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.

Viðhengi



EN
25/03/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Brim

 PRESS RELEASE

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brú lífeyrissjóði þar sem farið er yfir 5% eignarhlut í Brim hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Uppgjör Brims á öðrum ársfjórðungi 2025

Uppgjör Brims á öðrum ársfjórðungi 2025 Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 2F 2025 Vörusala var 82,4 m€ á fjórðungnum samanborið við 79,7 m€ á öðrum fjórðungi 2024Hagnaður var 3,2 m€ á fjórðungnum samanborið við 1,0 m€ á öðrum fjórðungi 2024EBITDA var 12,1 m€ og EBITDA hlutfall 14,6% samanborið við 9,0 m€ og EBITDA hlutfall 11,3%Eigið fé þann 30. júní 2025 var 476,6 m€ og eignfjárhlutfall 50,1% Guðmundur Kristjánsson, forstjóri: „Afkoma Brims á öðrum ársfjórðungi var ekki góð og sama má segja um fyrri helming ársins. Ávöxtun eigin fjár á fjórðungnum var 2,6% og 4,4% á fyrstu sex mánuðum ...

 PRESS RELEASE

Brim: Kynningarfundur fyrir uppgjör annars ársfjórðungs fimmtudaginn 2...

Brim: Kynningarfundur fyrir uppgjör annars ársfjórðungs fimmtudaginn 28. ágúst. Brim hf. mun birta uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 28. ágúst.Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 28. ágúst klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum.Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á . Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi...

 PRESS RELEASE

Niðurstöður hluthafafundar Brim hf. 30. júní 2025

Niðurstöður hluthafafundar Brim hf. 30. júní 2025 Niðurstöður hluthafafundar Brim hf. 30. júní 2025. Hluthafafundur staðfesti endurskoðaðan ársreikning móðurfélagsins.

 PRESS RELEASE

Brim hf. - Boðun hluthafafundar 30. júní 2025

Brim hf. - Boðun hluthafafundar 30. júní 2025 Hluthafafundur Brim hf. verður haldinn 30. júní 2025 Hluthafafundur Brim hf. verður haldinn mánudaginn 30. júní 2025 að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík, kl. 10:00. Fundurinn fer fram á íslensku. DAGSKRÁ1.    Endurskoðaður ársreikningur móðurfélagsins lagður fram til staðfestingar2.    Önnur mál, löglega upp borin. Nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á vefsíðu félagsins Reykjavík 6. júní 2025Stjórn Brims hf. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch