GRND Brim

Ársuppgjör Brims hf. 2025

Ársuppgjör Brims hf. 2025

Góður rekstur og sterk fjárhagsstaða

Fjórði ársfjórðungur (4F)

  • Rekstrartekjur á 4F 2025 voru 114,5 m€ samanborið við 105,2 m€ á 4F 2024
  • EBITDA nam 22,0 m€ á 4F samanborið við 18,3 m€ á sama tímabili 2024
  • Hagnaður á 4F var 20,3 m€ samanborið við 16,0 m€ á 4F 2024



Árið 2025

  • Rekstrartekjur ársins 2025 voru 409,7 m€ samanborið við 389,4 m€ árið 2024
  • EBITDA ársins 2025 var 90,6 m€ (22,1%) en var 65,3 m€ (16,8%) árið 2024
  • Hagnaður ársins 2025 var 60,0 m€, en var 40,5 m€ árið áður
  • Hagnaður á hlut var 0,031 € en var 0,021 € árið 2024
  • Heildareignir í árslok voru 997,7 m€ samanborið við 996,0 m€ í árslok 2024
  • Eiginfjárhlutfall var í lok árs 52% og eigið fé samtals 521,3 m€

Helstu atriði úr starfseminni

  • Heildarbotnfiskafli skipa félagsins á árinu 2025 var 43.300 en auk þess veiddi Þerney 3.700 tonn af makril og síld, botnfiskafli ársins 2024 var 48.100 tonn. Helstu breytingar á botnfiskheimildum á kvótaárinu 2025/26 frá fyrra ári eru samdráttur í þorski 4,6%, ufsa 10,8%, gullkarfa 13,4% og djúpkarfa um 34,2%. Aftur á móti er aukning í ýsu um 2,7% og grálúðu um 17,2%.Engin úthlutun er til íslenskra skipa til veiða í Barentshafi fyrir árið 2026 eins og árið 2025 þar sem heildarúthlutun þar er undir þeim mörkum sem þau þurfa að vera til þess að íslensk skip fái þar aflaheimildir.
  • Afli uppsjávarskipa var 102.000 tonn á árinu 2025 sem er aukning um 6.000 tonn frá árinu 2024, aukning var í makríl um 6.000 tonn og síld 3.800 tonn en minnkun í kolmunna um 4.000 tonn, auk þess veiddu skip félagsins 850 tonn af loðnu.

Rekstur

Rekstrartekjur Brims hf. árið 2025 námu 409,7 m€ samanborið við 389,4 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 90,6 m€ eða 22,1% af rekstrartekjum, en var 65,3 m€ eða 16,8% árið áður. Nettó fjármagnsgjöld voru 17,6 m€ samanborið við 17,6 m€ árið áður.

Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 17,0 m€, en voru 14,5 m€ árið áður. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 70,6 m€, samanborið 46,1 m€ árið áður. Gjaldfærður tekjuskattur nam 10,6 m€, en var 5,6 m€ árið áður. Hagnaður ársins varð því 60,0 m€ en var 40,5 m€ árið áður.

Meðalfjöldi ársverka árið 2025 var 655 en var 661 árið 2024. Laun og launatengd gjöld námu samtals 100,3 m€, samanborið við 87,6 m€ árið áður (14,5 milljarðar króna á meðalgengi ársins samanborið við 13,1 milljarða árið áður).

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 997,7 m€ árslok 2025. Þar af voru fastafjármunir 797,4 m€ og veltufjármunir 200,2 m€. Fjárhagsstaða félagins er sterk og nam eigið fé 521,3 m€ og var eiginfjárhlutfall 52,3%, en var 49,0% í lok árs 2024. Heildarskuldir félagsins í árslok 2025 voru 476,4 m€.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 57,1 m€ árið 2025, en var 45,3 m€ árið áður. Fjárfestingarhreyfingar voru jákvæðar um 24,9 m€, fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 60,1 m€ og áhrif gengisbreytinga voru neikvæð um 2,5 m€ Handbært fé hækkaði því um 19,3 m€ á tímabilinu og var í árslok 71,5 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi ársins 2025

(1 evra = 144,65 ísk) voru tekjur 59,3 milljarður króna, EBITDA 13,1 milljarðar og hagnaður 8,7 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á lokagengi ársins 2025 (1 evra = 147,2 ísk) voru eignir samtals 146,8 milljarðar króna, skuldir 70,1 milljarðar og eigið fé 76,7 milljarðar.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri:

„Rekstur Brims á árinu 2025 gekk vel. Umtalsverður samdráttur var í veiðum á mikilvægum botnfisktegundum eins og þorski, ýsu og gullkarfa en afurðaverð á þorski, ýsu og ufsa voru mjög há og réð þar mestu minna framboð á mörkuðum vegna aflabrests í Barentshafi.  Makrílveiðar gengu sérlega vel og þar voru há afurðaverð.

Á árinu 2025 kom í ljós eins og oft áður að Brim er traust og sterkt félag sem siglir áfram í gegnum öldur og brimskafla. Rekstur og efnahagur er öruggur. Heildareignir nema um 998 milljónum evra og er eiginfjárhlutfallið 52,2%. Bókfært eigið fé Brims er 521 milljón evra og nam arðsemi eigin fjárins 12%. Samkvæmt stefnu félagsins er um helmingur hagnaðar greiddur út til hluthafa eða 47% að þessu sinni og nema arðgreiðslurnar nú 2,1 kr á hvern hlut.

Þegar horft er um öxl til ársins 2025 í íslenskum sjávarútvegi ber hæst umrótið á vettvangi stjórnmálanna þar sem tekist var á um veiðgjöld og starfsskilyrði greinarinnar. Sú ólga sem þar skapaðist hafði lítil áhrif á rekstur Brims en þeim mun meiri áhrif á framtíðarhorfur sem birtist m.a. í að við héldum að okkur höndum í fjárfestingum í framleiðslutækjum félagsins á Vopnafirði, Akranesi og í Reykjavík.

Þegar horft er til ársins 2026 lítur vel út með veiðar og afurðaverð. Þegar hins vegar er horft til þeirra breytinga á lögum um veiðigjöld sem samþykkt voru á Alþingi á síðasta ári blasir við óvissa um hver veiðigjöld verða á hverja fisktegund á næstu árum því eins og sjá má á þessu ári þá hækkaði t.d. veiðigjald á makríl fyrir árið 2026 um 150% en lækkaði á síld um 60%. Einnig er mikil óvissa um þróun raforkuverðs á Íslandi í dag vegna mikilla hækkana  á flutningskostnaði raforku. Þegar óvissa sem þessi ríkir í rekstrarumhverfi sjávarútvegs-fyrirtækja er eðlilegt að þau haldi að sér höndum við fjárfestingu í framleiðslutækjum og fari varlega við uppbyggingu vinnslu sjávarfangs hér á landi.“

Aðalfundur

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 klukkan 16:30. Nánari upplýsingar verða veittar á heimasíðu félagsins

Tillaga stjórnar á aðalfundi um arðgreiðslu

Samkvæmt stefnu félagsins sem kynnt var í skráningarlýsingu félagsins árið 2014 leggur stjórn félagsins til að arðgreiðsla á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 verði 2,1 kr. á hlut, eða 4.043 millj. kr. (um 27,5 millj. evra á lokagengi ársins 2025), eða 2,9% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2025. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2026. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 19. mars 2026 og arðleysisdagur því 20. mars 2026.

Arðsréttindadagur er 23. mars 2026. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.

Samþykkt ársreiknings

Ársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Brims hf. 26. febrúar 2026. Ársreikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards) og hefur verið endurskoðaður af endurskoðendum félagsins.

Kynningarfundur þann 26. febrúar 2026

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar klukkan 16:30 að Norðurgarði 1, þar mun Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynna uppgjörið. Fundurinn verður einnig rafrænn og hægt verður að fylgjanst með fundinum á . Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið . Spurningum verður svarað í lok fundar.

Brim hf.

Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi.

Fjárhagsdagatal

Aðalfundur        19. mars 2026

Arðgreiðsludagur        30. apríl 2026

Fyrsti ársfjórðungur        28. maí 2026

Annar ársfjórðungur        27. ágúst 2026

Þriðji ársfjórðungur        19 . nóvember 2026

Fjórði ársfjórðungur        25. febrúar 2027

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson forstjóri, sími 550-1000.

Viðhengi



EN
26/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Brim

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn 19. mars 2026

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn 19. mars 2026 Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík klukkan 16:30. Fundurinn fer fram á íslensku. Dagskrá Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.Kosning stjórnar félagsins.Kosning endurskoðenda.Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd.Tillaga um að stjórn fái heimild til kau...

 PRESS RELEASE

Ársuppgjör Brims hf. 2025

Ársuppgjör Brims hf. 2025 Góður rekstur og sterk fjárhagsstaða Fjórði ársfjórðungur (4F) Rekstrartekjur á 4F 2025 voru 114,5 m€ samanborið við 105,2 m€ á 4F 2024EBITDA nam 22,0 m€ á 4F samanborið við 18,3 m€ á sama tímabili 2024Hagnaður á 4F var 20,3 m€ samanborið við 16,0 m€ á 4F 2024 Árið 2025 Rekstrartekjur ársins 2025 voru 409,7 m€ samanborið við 389,4 m€ árið 2024EBITDA ársins 2025 var 90,6 m€ (22,1%) en var 65,3 m€ (16,8%) árið 2024Hagnaður ársins 2025 var 60,0 m€, en var 40,5 m€ árið áðurHagnaður á hlut var 0,031 € en var 0,021 € árið 2024Heildareignir í árslok voru 997,7 m€ sam...

 PRESS RELEASE

Brim: Birting ársreiknings 2025, fimmtudaginn 26. febrúar 2026

Brim: Birting ársreiknings 2025, fimmtudaginn 26. febrúar 2026 Brim hf. mun birta ársreikning félagsins fyrir árið 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 26. febrúar.Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjörið og svarar spurningum.Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á . Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið . Að...

 PRESS RELEASE

Brim: Fjárhagsdagatal ársins 2026

Brim: Fjárhagsdagatal ársins 2026 Brim mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali fyrir árið 2026. Ársuppgjör 2025                          26. febrúar 2026Aðalfundur 2026                          19. mars 2026Fyrsti ársfjórðungur 2026             28. maí 2026Annar ársfjórðungur 2026            27. ágúst 2026Þriðji ársfjórðungur 2026              19. nóvember 2026Ársuppgjör 2026                           25. febrúar 2027 Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

 PRESS RELEASE

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025 Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 3F 2025 Vörusala var 111 m€ á fjórðungnum samanborið við 110 m€ á þriðja fjórðungi 2024Hagnaður var 29 m€ á fjórðungnum samanborið við 19 m€ á þriðja fjórðungi 2024EBITDA var 42 m€ og EBITDA hlutfall 37,3%Eignir hafa lækkað um 13 m€ frá áramótum og voru 983 m€ í lok tímabilsinsEigið fé þann 30. september 2025 var 505 m€ og eignfjárhlutfall 51,4% Guðmundur Kristjánsson, forstjóri: „Afkoma þriðja fjórðungs er góð og eru það tveir þættir sem skipta mestu máli. Veiðar og vinnsla á makríl gengu vel og verð á sjávarafurð...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch