GRND Brim

Brim hf.: Upplýsingar um breytta framkvæmd aðalfundar

Brim hf.: Upplýsingar um breytta framkvæmd aðalfundar

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl. 17:00.

Þar sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnarlæknis, að takmarka samkomur vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar hefur verið lagt bann við því að halda fjölmennan fund. Því hafa forsendur breyst verulega frá því að aðalfundur Brims hf. var auglýstur og ekki lengur tækt að safna hluthöfum saman til fundar á einn stað. Í ljósi þess og ábendingum frá hluthöfum félagsins beinir stjórnin því til hluthafa að mæta ekki á aðalfundinn heldur kjósa fyrirfram skriflega um tillögur fundarins og fela fundarstjóra umboð til að kjósa á fundinum fyrir sína hönd. Gert er ráð fyrir að einungis mæti á fundarstað starfsmenn fundarins, forstjóri og stjórnarformaður. 

Skrifleg kosning

Eyðublað fyrir skriflega kosningu og leiðbeiningar er að finna á heimasíðu félagsins:

Skulu hluthafar senda útfyllt eyðublöð á netfangið: og verður tekið við þeim þar til fundurinn hefst kl. 17:00 á aðalfundardaginn.

Skriflegt umboð

Jafnframt má senda þeim sem koma til með að sitja fundinn umboð með saman hætti og greinir hér að framan. Eyðublað og leiðbeiningar um það er að finna á heimasíðu félagsins:

Frestur hluthafa til að senda félaginu umboð og skrifleg atkvæði er til kl. 17:00 á aðalfundardaginn á netfangið:

Fundurinn verður sendur út gegnum heimasíðu félagsins: Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst. Aðgangsorð inná fundinn verður sennt við móttöku atkvæðaseðils með umboði.

Nánari upplýsingar veita:

Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri í síma 858-1170 eða á netfangið

Jón Þór Andrésson í síma 858-1030 eða á netfangið

Reykjavík, 24. mars 2020

Stjórn Brims hf.

Viðhengi

EN
24/03/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Brim

 PRESS RELEASE

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025 Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 3F 2025 Vörusala var 111 m€ á fjórðungnum samanborið við 110 m€ á þriðja fjórðungi 2024Hagnaður var 29 m€ á fjórðungnum samanborið við 19 m€ á þriðja fjórðungi 2024EBITDA var 42 m€ og EBITDA hlutfall 37,3%Eignir hafa lækkað um 13 m€ frá áramótum og voru 983 m€ í lok tímabilsinsEigið fé þann 30. september 2025 var 505 m€ og eignfjárhlutfall 51,4% Guðmundur Kristjánsson, forstjóri: „Afkoma þriðja fjórðungs er góð og eru það tveir þættir sem skipta mestu máli. Veiðar og vinnsla á makríl gengu vel og verð á sjávarafurð...

 PRESS RELEASE

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt Brim hf. hefur endurnýjað samning sinn við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland. Samningurinn kveður á um að Kvika skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar áður en markaðurinn opnar. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Kviku tekið eða verði það fellt niður af hálfu Kviku skal Kvika setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð...

 PRESS RELEASE

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt Brim hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í Brim. Samningur Brims við Landsbankann kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 12 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 24 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum sem gengið er að. Magnbundið hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða ákvarðast af 10 daga flökti verðs hlutabréfa Brims. Ef 10 daga flökt er undir 30% er magnvegið verðbil...

 PRESS RELEASE

Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf.

Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf. Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf. Samþykkt hefur verið kauptilboð Brim hf. í alla hluti Lýsi hf. fyrir 30 milljarða króna, með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar kaupanda og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð miðast við að heildarverðmæti alls hlutafjár í Lýsi hf. sé samtals krónur 30.000.000.000-, (þrjátíu milljarðar króna 00/100). Frá dragast vaxtaberandi skuldir m.v. 30. júní 2025, sem námu samtals 5.277.295.082. Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim hf., miðað er vi...

 PRESS RELEASE

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brú lífeyrissjóði þar sem farið er yfir 5% eignarhlut í Brim hf.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch