GRND Brim

Leiðrétting: Niðurstöður aðalfundar Brim hf. 20. mars 2025

Leiðrétting: Niðurstöður aðalfundar Brim hf. 20. mars 2025

Leiðrétting: Það láðist að setja inn samþykktan texta aðalfundar um heimild til hluthafa að fá arðgreiðslu greidda í evrum. Þetta er uppfært hér með.

Niðurstöður aðalfundar Brim hf. 20. mars 2025

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.

Fundurinn samþykkti eftirfarandi tillögur:

  1. Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.

Samþykkt að arðgreiðsla á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 verði 1,5 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 2.881 millj.kr. (um 20,1 millj.evra á lokagengi ársins 2024), eða 2,03% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2024. Arðurinn verði greiddur 30. apríl 2025. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 20. mars 2025 og arðleysisdagur því 21. mars 2025. Arðsréttindadagur er 24. mars 2025. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.

Hluthöfum mun standa til boða að fá arðgreiðslu greidda í evrum, sem mun byggja á ISK/EUR miðgengi Seðlabanka Íslands eins og það er tilgreint við lok dags, síðasta dag fyrir arðgreiðslu eða 29. apríl 2025. Hluthafar sem hyggjast óska eftir arðgreiðslu í evrum skulu tilkynna það fyrir lok dags 15. apríl 2025 á þar til gert eyðublað, sem er aðgengilegt hér. /fjarfestar/adalfundur

  1. Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu.

Samþykkt óbreytt starfskjarastefna.

  1. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.

Samþykkt að þóknun næsta starfsárs til stjórnarmanna verði 383.000 kr. á mánuði, varaformaður fá einn og hálfan hlut og formaður tvöfaldan hlut.

  1. Kosning stjórnar félagsins.

Stjórn var sjálfkjörin þar sem frambjóðendur voru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem kjósa á um á fundinum. Stjórnina skipa:

  • Anna G. Sverrisdóttir
  • Hjálmar Þór Kristjánsson
  • Kristján Þ. Davíðsson 
  • Kristrún Heimisdóttir
  • Magnús Gústafsson

Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í undirnefndir stjórnar. Formaður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar er Anna G. Sverrisdóttir.

Skipun í undirnefndir stjórnar

Endurskoðunarnefnd: Anna G. Sverrisdóttir, formaður, Gunnar Ásgeirsson og Kristrún Heimisdóttir. Þóknun nefndarmanna verður 175.000 kr. á mánuði og formaður með tvöfaldan hlut.

Starfskjaranefnd: Kristrún Heimisdóttir, formaður, Kristján Þ. Davíðsson og Magnús Gústafsson. Þóknun nefndarmanna verður 130.000 kr. á mánuði og formaður með tvöfaldan hlut.

  1. Kosning endurskoðenda.
    • Samþykkt að endurskoðandi félagsins fyrir næsta starfsár verði Deloitte ehf.
  1. Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd.

Samþykkt að Gunnar Þór Ásgeirsson, verði tilnefndur sem utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd félagsins.

  1. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.

Aðalfundur samþykkti að veita stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.



EN
21/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Brim

 PRESS RELEASE

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025 Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 3F 2025 Vörusala var 111 m€ á fjórðungnum samanborið við 110 m€ á þriðja fjórðungi 2024Hagnaður var 29 m€ á fjórðungnum samanborið við 19 m€ á þriðja fjórðungi 2024EBITDA var 42 m€ og EBITDA hlutfall 37,3%Eignir hafa lækkað um 13 m€ frá áramótum og voru 983 m€ í lok tímabilsinsEigið fé þann 30. september 2025 var 505 m€ og eignfjárhlutfall 51,4% Guðmundur Kristjánsson, forstjóri: „Afkoma þriðja fjórðungs er góð og eru það tveir þættir sem skipta mestu máli. Veiðar og vinnsla á makríl gengu vel og verð á sjávarafurð...

 PRESS RELEASE

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt Brim hf. hefur endurnýjað samning sinn við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð eru á aðalmarkað NASDAQ Iceland. Samningurinn kveður á um að Kvika skuli hvern viðskiptadag leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar áður en markaðurinn opnar. Tilboðin skulu gilda innan dagsins. Verði tilboði Kviku tekið eða verði það fellt niður af hálfu Kviku skal Kvika setja fram nýtt tilboð þar til hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. Tilboð skulu endurnýjuð...

 PRESS RELEASE

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt

Brim: Endurnýjun samnings um viðskiptavakt Brim hf. hefur endurnýjað samning við Landsbankann um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum í Brim. Samningur Brims við Landsbankann kveður á um að kaup- og sölutilboð skuli að lágmarki nema 12 milljónum íslenskra króna að markaðsvirði. Hámarksmagn viðskipta á hverjum degi skal nema 24 milljónum króna að nettó markaðsvirði, sem reiknast sem mismunur á þeim kaup- og sölutilboðum sem gengið er að. Magnbundið hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða ákvarðast af 10 daga flökti verðs hlutabréfa Brims. Ef 10 daga flökt er undir 30% er magnvegið verðbil...

 PRESS RELEASE

Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf.

Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf. Brim hf. kaupir alla hluti í Lýsi hf. Samþykkt hefur verið kauptilboð Brim hf. í alla hluti Lýsi hf. fyrir 30 milljarða króna, með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar kaupanda og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð miðast við að heildarverðmæti alls hlutafjár í Lýsi hf. sé samtals krónur 30.000.000.000-, (þrjátíu milljarðar króna 00/100). Frá dragast vaxtaberandi skuldir m.v. 30. júní 2025, sem námu samtals 5.277.295.082. Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim hf., miðað er vi...

 PRESS RELEASE

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður

Brim hf. - Flöggun - Brú lífeyrissjóður Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun frá Brú lífeyrissjóði þar sem farið er yfir 5% eignarhlut í Brim hf.  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch