GRND Brim

Uppgjör Brims hf. á fyrsta ársfjórðungi 2020

Uppgjör Brims hf. á fyrsta ársfjórðungi 2020

  • Rekstrartekjur samstæðunnar voru 74,4 m€
  • EBITDA var 7,7 m€ (10,4%)
  • Hagnaður tímabilsins var 0,4 m€
  • Handbært fé frá rekstri nam 21,3 m€

Rekstur fyrstu þriggja mánaða ársins 2020

Rekstrartekjur Brims hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins 2020 námu 74,4 m€, samanborið við 58,0 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 7,7 m€ eða 10,4% af rekstrartekjum, en var 9,7 m€ eða 16,7% árið áður.  Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 3,2 m€, en voru neikvæð um 0,8 m€ á sama tíma árið áður.  Áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 0,3 m€, en voru jákvæð um 0,05 m€ árið áður.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 0,8 m€ og hagnaður tímabilsins var 0,4 m€. 

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 704,2 m€ í lok mars 2020. Þar af voru fastafjármunir 553,9 m€ og veltufjármunir 150,3 m€.  Eigið fé nam 306,4 m€, eiginfjárhlutfall í lok mars var 43,5%, en var 45,3% í lok árs 2019. Heildarskuldir félagsins voru í marslok 397,8 m€.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 21,3 m€ á tímabilinu, en nam 22,2 m€ á sama tíma fyrra árs.  Fjárfestingarhreyfingar voru neikvæðar um 7,1 m€.  Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 4,5 m€.  Handbært fé hækkaði því um 9,6 m€ á tímabilinu og var í lok mars 63,1 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta ársfjórðungs 2020 (1 evra = 141,51 kr) verða tekjur 10,5 milljarðar króna, EBITDA 1,1 milljarður og hagnaður 0,06 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2020 (1 evra = 154,87 kr) verða eignir samtals 109,1 milljarðar króna, skuldir 61,6 milljarðar og eigið fé 47,5 milljarðar.

Skipastóll og afli

Skipastóll samstæðunnar er óbreyttur frá áramótum og eru nú átta skip í flota samstæðunnar.

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2020 var afli skipa félagsins 12,7 þúsund tonn af botnfiski og 11,0 þúsund tonn af uppsjávarfiski.

Kristján Þ. Davíðsson, stjórnarformaður Brims hf.:

Afkoma Brims á fyrsta ársfjórðungi 2020 markast nokkuð af erfiðu tíðarfari og þar með gæftum í upphafi árs með nokkuð lakari afla og þar með afkomu, einkum í veiðum og vinnslu uppsjávarafla. Loðnubrestur annað árið í röð veldur einnig nokkru um afkomu fjórðungsins. Félagið nýtur nú góðs af fjárfestingum undanfarinna missera, bæði í Ögurvík og sölufélögunum í Asíu. Þrátt fyrir að verð sjávarafurða hafi almennt verið tiltölulega góð í upphafi árs eru horfur á mörkuðum óvissar vegna áhrifa heimsfaraldursins á neyslumynstur, sölu og flutninga.”

Kynningarfundur þann 20. maí 2020

Rafrænn kynningarfundur um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi verður haldinn í dag miðvikudaginn 20. maí klukkan 17:00. Í ljósi aðstæðna fer hann eingöngu fram í gegnum fjarfundabúnað. Hægt er að sækja um aðgang að fundinum á póstfangið .

Kristján Þ. Davíðsson stjórnarformaður mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Viðhengi

EN
20/05/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Brim

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn 19. mars 2026

Aðalfundur Brims hf. verður haldinn 19. mars 2026 Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. mars 2026 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík klukkan 16:30. Fundurinn fer fram á íslensku. Dagskrá Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu.Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.Kosning stjórnar félagsins.Kosning endurskoðenda.Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd.Tillaga um að stjórn fái heimild til kau...

 PRESS RELEASE

Ársuppgjör Brims hf. 2025

Ársuppgjör Brims hf. 2025 Góður rekstur og sterk fjárhagsstaða Fjórði ársfjórðungur (4F) Rekstrartekjur á 4F 2025 voru 114,5 m€ samanborið við 105,2 m€ á 4F 2024EBITDA nam 22,0 m€ á 4F samanborið við 18,3 m€ á sama tímabili 2024Hagnaður á 4F var 20,3 m€ samanborið við 16,0 m€ á 4F 2024 Árið 2025 Rekstrartekjur ársins 2025 voru 409,7 m€ samanborið við 389,4 m€ árið 2024EBITDA ársins 2025 var 90,6 m€ (22,1%) en var 65,3 m€ (16,8%) árið 2024Hagnaður ársins 2025 var 60,0 m€, en var 40,5 m€ árið áðurHagnaður á hlut var 0,031 € en var 0,021 € árið 2024Heildareignir í árslok voru 997,7 m€ sam...

 PRESS RELEASE

Brim: Birting ársreiknings 2025, fimmtudaginn 26. febrúar 2026

Brim: Birting ársreiknings 2025, fimmtudaginn 26. febrúar 2026 Brim hf. mun birta ársreikning félagsins fyrir árið 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 26. febrúar.Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjörið og svarar spurningum.Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á . Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið . Að...

 PRESS RELEASE

Brim: Fjárhagsdagatal ársins 2026

Brim: Fjárhagsdagatal ársins 2026 Brim mun halda aðalfund og birta árshluta- og ársuppgjör samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali fyrir árið 2026. Ársuppgjör 2025                          26. febrúar 2026Aðalfundur 2026                          19. mars 2026Fyrsti ársfjórðungur 2026             28. maí 2026Annar ársfjórðungur 2026            27. ágúst 2026Þriðji ársfjórðungur 2026              19. nóvember 2026Ársuppgjör 2026                           25. febrúar 2027 Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

 PRESS RELEASE

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025

Uppgjör Brims á þriðja ársfjórðungi 2025 Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 3F 2025 Vörusala var 111 m€ á fjórðungnum samanborið við 110 m€ á þriðja fjórðungi 2024Hagnaður var 29 m€ á fjórðungnum samanborið við 19 m€ á þriðja fjórðungi 2024EBITDA var 42 m€ og EBITDA hlutfall 37,3%Eignir hafa lækkað um 13 m€ frá áramótum og voru 983 m€ í lok tímabilsinsEigið fé þann 30. september 2025 var 505 m€ og eignfjárhlutfall 51,4% Guðmundur Kristjánsson, forstjóri: „Afkoma þriðja fjórðungs er góð og eru það tveir þættir sem skipta mestu máli. Veiðar og vinnsla á makríl gengu vel og verð á sjávarafurð...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch