HAMP Hampidjan Ltd

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Ytri þættir hafa neikvæð áhrif á afkomu fjórða ársfjórðungs 2023

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Ytri þættir hafa neikvæð áhrif á afkomu fjórða ársfjórðungs 2023

Í áætlun sem kynnt var samhliða hlutafjárútboði Hampiðjunnar í maí 2023 kom fram að áætluð EBITDA samstæðu félagsins yrði á bilinu 43 til 49 m EUR á árinu 2023. Á vettvangi félagsins er nú unnið að uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2023 og gerð ársreiknings. Drög að uppgjörinu liggja nú fyrir og samkvæmt þeim mun EBITDA, leiðrétt fyrir einskiptisliðum tengdum töku til viðskipta á Aðalmarkaði og kaupum á Mørenot nema rúmum 40 m EUR og er því undir þeim mörkum sem áætlun gerði ráð fyrir.

Niðurstaðan hefur ekki áhrif á birta langtímaáætlun félagsins fyrir árið 2027 sem einnig var kynnt fjárfestum í maí um EBITDA á bilinu 69-77 m EUR.

Félagið áætlar nú að EBITDA í ársreikningi félagsins fyrir árið 2023 nemi um 37 m EUR og einskiptiskostnaður tengdur kaupum á Mørenot og skráningu á aðalmarkað ásamt endurskipurlagningarkostnaði í Mørenot nemi rúmum 3 m EUR.

Drög að uppgjöri benda til að velta samstæðu Hampiðjunnar hafi numið rúmum 320 m EUR á árinu 2023 og er það innan þeirra áætluðu marka sem voru kynnt samhliða hlutafjárútboði félagins í maí.

Mørenot kom inn í samstæðu Hampiðjunnar frá 1. febrúar 2023 og hefði félagið verið hluti af samstæðu Hampiðjunnar allt árið hefði velta samstæðunnar numið um 330 m EUR og leiðrétt EBITDA numið um 41 m EUR.

Rekstur félagsins gekk almennt vel á árinu 2023 og samkvæmt drögum að ársuppgjöri jókst velta þeirra fyrirtækja sem voru innan samstæðu Hampiðjunnar fyrir kaupin á Mørenot um 11 m EUR á milli ára og nam um 205 m EUR sem samsvarar um 6% söluaukningu. Leiðrétt EBITDA þeirra félaga, vegna einskiptiskostnaðar í tengslum við kaup á Mørenot og skráningu á aðalmarkað, jókst einnig á árinu og nam um 30 m EUR eða um 15% sem hlutfall af tekjum.

Rekstur Mørenot samstæðunnar gekk vel á fyrstu þremur ársfjórðungum 2023 en á síðasta ársfjórðungi ársins komu inn neikvæðir þættir, einkum frá dótturfélagi félagsins Mørenot Aquaculture, sem er þjónustufyrirtæki við fiskeldisiðnað. Þá þætti sem eru þessu valdandi má meðal annars rekja til veðurfars í Noregi og þess að ekki tókst að halda uppi þjónustustigi í viðhaldsverkefnum þótt mikið af þeim lægju fyrir. Einnig var pöntunarstaða á nýjum fiskeldiskvíum á síðasta ársfjórðungi undir væntingum stjórnenda. Töluvert hefur þó áunnist í að bæta rekstur Mørenot Aquaculture frá fyrra ári og EBITDA hefur hækkað töluvert á milli ára.

Ekki liggja fyrir lokatölur um hagnað ársins en ljóst er að hann verður merkjanlega lægri en á fyrra ári, einkum vegna hærri afskrifta og hærra grunnvaxtastigs en á fyrra ári.

Vinna við ársuppgjör er enn í gangi og því geta lykiltölur tekið breytingum fram að birtingu. Hampiðjan mun birta niðurstöðu ársins þann 7. mars næstkomandi í samræmi við fjárhagsdagatal.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664-3361.



EN
26/02/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hampidjan Ltd

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er hal...

Hampiðjan hf. - Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 20. mars 2026 kl. 16:00 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn föstudaginn 20. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum Hampiðjunnar að Skarfagörðum 4, Reykjavík, Dagskrá:   1.          Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2025.  2.          Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2025.  3.          Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.  4.          Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.  5.          Kosning stjórnar félagsins.           ...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan – Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025

Hampiðjan – Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025 Lykilstærðir  Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga. Árið 2025 Rekstrartekjur ársins voru 359,7 m€ (311,0 m€)EBITDA af reglulegri starfsemi var 39,6 m€ (37,6 m€)Aðlöguð EBITDA fyrir einskiptiskostnaði nam 40,4 m€ (37,6 m€)Fjáreignatekjur námu 1,6 m€ (4,7 m€)Fjármagnsgjöld voru 12,7 m€ (13,5 m€)Gengismunur var 1,9 m€ til gjalda (2,1 m€ til tekna)Hagnaður ársins af áframhaldandi starfsemi nam 8,8 m€ (14,3 m€)Aflögð starfsemi eftir skatta nam 2,9 m€ til gjalda (0,3 m€ til gjalda)Heildareignir voru 547,5 m€ (509,5 m€ í lok 20...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars.

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars. Hampiðjan hf. mun birta ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið Ársreikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum. Nána...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 20. mars 2026 og hefst klukkan 16:00. Á dagskrá fundarins verður:    1.        Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2025.   2.        Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2025.   3.        Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.   4.        Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.   5.        Kosning stjórnar félagsins.                a. Kosning formanns.                b. Kosni...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 undir ...

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 undir væntingum Á vettvangi félagsins er nú unnið að uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2025 og gerð ársreiknings. Drög að uppgjöri benda til að velta samstæðu Hampiðjunnar hafi numið tæpum 360 m€ á árinu 2025 sem er aukning um 15% á milli ára. Félagið áætlar að EBITDA í ársreikningi félagsins fyrir árið 2025 nemi á bilinu 39 til 40 m€. EBITDA hefur því aukist um rúm 5% á milli ára sem er minni aukning en árshlutauppgjör Hampiðjunnar hafa sýnt til þessa. Sé leiðrétt fyrir einskiptisliðum þá hækkar ofangreind EBITDA um tæpar 0,8 m€....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch