HAMP Hampidjan Ltd

Hampiðjan hf. – Samkeppniseftirlitið á Íslandi samþykkir kaup Hampiðjunnar á Mørenot.

Hampiðjan hf. – Samkeppniseftirlitið á Íslandi samþykkir kaup Hampiðjunnar á Mørenot.

Hampiðjan hf. vísar til tilkynningar dags. 17. nóvember 2022 þar sem greint var frá undirritun kaupsamnings við eigendur norska félagsins Mørenot A/S („Mørenot“) um kaup Hampiðjunnar á öllu hlutafé Mørenot. Í tilkynningunni var greint frá því að samningurinn væri gerður með fyrirvara um samþykki m.a. samkeppniseftirlita á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.

Í dag bárust félaginu viðbrögð Samkeppniseftirlitsins við samrunatilkynningu félagsins þess efnis að eftirlitið telji ekki forsendur til að hafast frekar að vegna kaupanna. Einnig hefur félaginu borist staðfesting samkeppnisyfirvalda á Grænlandi þess efnis að samruninn sé ekki tilkynningarskyldur þar í landi.

Eftir stendur að afstaða samkeppnisyfirvalda í Færeyjum liggur ekki fyrir en félagið væntir þess að afstaða þeirra muni skýrast fyrir lok mánaðarins.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664-3361

Hampiðjan hf. - The Icelandic Competition Authority approves Hampiðjan's acquisition of Mørenot.

Hampiðjan hf. refers to the announcement submitted November 17th , 2022, where it was informed that an agreement had been signed with the owners of the Norwegian company Mørenot A/S ("Mørenot") regarding Hampiðjan's acquisition of Mørenot's entire share capital. In the announcement it was also informed that the agreement was subject to the approval of the Competition Authorities in Iceland, Greenland and the Faroe Islands.

Today, the Hampiðjan received confirmation that the Competition Authority in Iceland will not take any action regarding the acquisition. The company has also received confirmation from the Competition Authority in Greenland that the authority dosen‘t have any remarks to the acquisition.

The position of the Competition Authority in the Faroe Islands is not known yet but the company expects to recieve the their response before the end of this month.

For more information, please contact Hjörtur Erlendsson, CEO, at tel. 664-3361



EN
18/01/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hampidjan Ltd

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er hal...

Hampiðjan hf. - Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 20. mars 2026 kl. 16:00 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn föstudaginn 20. mars 2026 kl. 16:00 í höfuðstöðvum Hampiðjunnar að Skarfagörðum 4, Reykjavík, Dagskrá:   1.          Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2025.  2.          Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2025.  3.          Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.  4.          Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.  5.          Kosning stjórnar félagsins.           ...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan – Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025

Hampiðjan – Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025 Lykilstærðir  Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga. Árið 2025 Rekstrartekjur ársins voru 359,7 m€ (311,0 m€)EBITDA af reglulegri starfsemi var 39,6 m€ (37,6 m€)Aðlöguð EBITDA fyrir einskiptiskostnaði nam 40,4 m€ (37,6 m€)Fjáreignatekjur námu 1,6 m€ (4,7 m€)Fjármagnsgjöld voru 12,7 m€ (13,5 m€)Gengismunur var 1,9 m€ til gjalda (2,1 m€ til tekna)Hagnaður ársins af áframhaldandi starfsemi nam 8,8 m€ (14,3 m€)Aflögð starfsemi eftir skatta nam 2,9 m€ til gjalda (0,3 m€ til gjalda)Heildareignir voru 547,5 m€ (509,5 m€ í lok 20...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars.

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars. Hampiðjan hf. mun birta ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið Ársreikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum. Nána...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 20. mars 2026 og hefst klukkan 16:00. Á dagskrá fundarins verður:    1.        Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2025.   2.        Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2025.   3.        Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.   4.        Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.   5.        Kosning stjórnar félagsins.                a. Kosning formanns.                b. Kosni...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 undir ...

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 undir væntingum Á vettvangi félagsins er nú unnið að uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2025 og gerð ársreiknings. Drög að uppgjöri benda til að velta samstæðu Hampiðjunnar hafi numið tæpum 360 m€ á árinu 2025 sem er aukning um 15% á milli ára. Félagið áætlar að EBITDA í ársreikningi félagsins fyrir árið 2025 nemi á bilinu 39 til 40 m€. EBITDA hefur því aukist um rúm 5% á milli ára sem er minni aukning en árshlutauppgjör Hampiðjunnar hafa sýnt til þessa. Sé leiðrétt fyrir einskiptisliðum þá hækkar ofangreind EBITDA um tæpar 0,8 m€....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch