ICEAIR Icelandair Group Holding

Icelandair eykur framboð og bætir við áfangastöðum

Icelandair eykur framboð og bætir við áfangastöðum



Icelandair kynnir nú flugáætlun fyrir árið 2024 sem er sú umfangsmesta í sögunni. Félagið mun fljúga til yfir 50 áfangastaða og starfrækja þrjá tengibanka með mismunandi brottfarartímum innan dagsins. Flogið verður daglega til 28 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku og þar af verður boðið upp á fleiri en eitt daglegt flug til 19 þeirra. Halifax og Pittsburgh bætast við sem áfangastaðir næsta sumar og tíðni verður aukin til fjölda  áfangastaða. Tengimöguleikar innan leiðakerfisins verða um 800 og mun fleiri í gegnum samstarfssamninga við önnur flugfélög. Á árinu 2024 er gert ráð fyrir að framboðnum sætiskílómetrum (ASK) fjölgi um að minnsta kosti 10% frá fyrra ári.  

Þrjár Boeing 737 MAX 8 flugvélar bætast í flota félagsins á næsta ári. Flugflotinn í farþegafluginu mun þá samanstanda af 42 flugvélum, þar af 21 af gerðinni 737 MAX. 





Halifax og Pittsburgh nýir áfangastaðir 

Icelandair kynnir nú í fyrsta sinn til sögunnar flug til Pittsburgh sem verður tólfti áfangastaður félagsins í Bandaríkjunum. Flogið verður fjórum sinnum í viku frá miðjum maí til októberloka. Pittsburgh er önnur stærsta borg Pennsylvaníu og liggur á bökkum þriggja fljóta – er fyrir vikið kölluð borg brúanna. Borgin hefur lengi verið kennd við stál og iðnað en hún býr engu að síður yfir sjarma menningar og fjölda fagurgrænna almenningsgarða. 

Þá verður, eftir nokkurra ára hlé, boðið upp á þrjár ferðir á viku til Halifax í Kanada. Flug  hefst 31. maí  og verður flogið fram í miðjan október. Halifax er höfuðborg Nova Scotia, héraðs á austurströnd Kanada. Hún er í senn lifandi hafnarborg og iðandi miðstöð verslunar og viðskipta.  

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: 

„Við kynnum með ánægju metnaðarfulla flugáætlun fyrir næsta sumar og þá stærstu í sögu félagsins. Flugflotinn okkar heldur áfram að stækka og við bætum við þremur nýjum, hagkvæmum og umhverfisvænum Boeing 737 MAX flugvélum á næsta ári. Það er frábært að bæta við tveimur nýjum áfangastöðum í N-Ameríku og auka tíðni flugs verulega til annarra áfangastaða. Norður-Ameríku markaður hefur verið mjög sterkur og til marks um það eru Bandaríkjamenn nú í efsta sæti yfir fjölda ferðamanna sem sækja okkur heim. Reynslumikið starfsfólk, yfirgripsmiklir söluinnviðir, sterkt alþjóðlegt vörumerki ásamt verðmætum samstarfssamningum við önnur flugfélög gera félaginu mögulegt að halda sókn sinni áfram og grípa þau tækifæri sem til staðar eru.“ 

Nánari upplýsingar

Fjárfestar: Íris Hulda Þóridsóttir, Forstöðumaður Fjárfestatengsla. Netfang: 

Media: Ásdís Pétursdóttir, Forstöðumaður Samskipta og sjálfbærni. Netfang: 





EN
02/11/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Icelandair Group Holding

 PRESS RELEASE

Icelandair: Considerable increase on the via market, improved load fac...

Icelandair: Considerable increase on the via market, improved load factor and on-time performance In March 2024, Icelandair transported 298 thousand passengers, which represents a 25% increase in passenger traffic as measured by Revenue Passenger Kilometers (RPK) on a capacity increase of 22% compared to March 2023. During the month, 39% of passengers were traveling to Iceland, 19% from Iceland, 34% were via passengers, and 8% were traveling within Iceland. Load factor was 83.1% and on-time performance was 88.5%, increasing by 4.7 ppt from the already solid performance in March 2023. Bogi ...

 PRESS RELEASE

Icelandair: Mikil aukning tengifarþega, betri sætanýting og stundvísi

Icelandair: Mikil aukning tengifarþega, betri sætanýting og stundvísi Heildarfjöldi farþega Icelandair var 298 þúsund í mars. Farþegaflutningar hjá félaginu jukust um 25%, mældir í tekjufarþegakílómetrum (e. Revenue Passenger Kilometer) og framboð jókst um 22% frá mars 2023. Í mánuðinum voru 39% farþega á leið til Íslands, 19% frá Íslandi, 34% voru tengifarþegar og 8% ferðuðust innanlands. Sætanýting var 83,1% og stundvísi var 88,5%, 4,7 prósentustigum hærri en stundvísi í mars 2023 sem var þó mjög góð. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: „Við sjáum áframhaldandi góðar farþeg...

 PRESS RELEASE

Icelandair: Net profit is expected to increase between years with EBIT...

Icelandair: Net profit is expected to increase between years with EBIT ratio of 2-4% Icelandair is issuing financial guidance for the full year 2024. Uncertainty in the operating environment, as reported in the 2023 results announcement on 1 February 2024, has decreased with diminishing impact of inaccurate international media coverage of the volcanic activity in Southwest Iceland on bookings and the conclusion of the collective bargaining agreements in the private sector in Iceland.   Capacity in 2024, as measured in Available Seat Kilometers (ASK), is expected to increase by 10% year-on...

 PRESS RELEASE

Icelandair: Gert ráð fyrir auknum hagnaði á milli ára og að EBIT hlutf...

Icelandair: Gert ráð fyrir auknum hagnaði á milli ára og að EBIT hlutfall verði 2-4% Icelandair gefur nú út afkomuspá fyrir árið 2024. Óvissa í rekstrarumhverfinu, sem fjallað var um í tilkynningu með uppgjöri ársins 2023 hinn 1. febrúar síðastliðinn, hefur minnkað. Bæði hafa áhrif af ónákvæmum fréttum af eldsumbrotum á Reykjanesi á bókanir minnkað ásamt því að nýgerðir langtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði skapa meiri stöðugleika.   Gert er ráð fyrir að flugframboð, í sætiskílómetrum, aukist um 10% frá fyrra ári. Áherslan verður á að auka framboð inn á markaði sem hafa mikla te...

 PRESS RELEASE

Icelandair: New Market Making Agreements

Icelandair: New Market Making Agreements Icelandair Group hf. (“Icelandair”) has entered into an agreement with Íslandsbanki hf. for market making of shares issued by the Company traded on the Nasdaq Iceland Regulated Market. The purpose of the agreement is to maintain the liquidity of Icelandair's shares, create a market price and the price formation of the shares in the most efficient and transparent manner.   The agreement stipulates that Íslandsbanki shall submit daily bids and offers to buy and sell Icelandair’s shares in the trading system of the Icelandic stock exchange. Each bid a...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch