FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Sumarið í 1,6 milljarða hagnaði hjá PLAY

Fly Play hf.: Sumarið í 1,6 milljarða hagnaði hjá PLAY

Sumarið í 1,6 milljarða hagnaði hjá PLAY

Flugfélagið PLAY skilaði 1,6 milljarða króna hagnaði eftir sumarið 2023. Þetta kom fram á upplýsingafundi félagsins í dag þar sem farið var yfir lykiltölur í rekstri. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið skilar hagnaði af rekstri eftir skatta að lokinni sumarvertíð.  Það sýnir að PLAY var arðbært félag í sumar og að viðskiptamódel þess sé að sanna sig.

Hagnaðurinn á sumarmánuðunum 2023, júní til ágúst, var 12 milljónir bandaríkjadala, sem er 1,6 milljarðar íslenskra króna, samanborið við 3 milljóna dala tap, 400 milljónir króna, á sama tímabili í fyrra. Viðsnúningurinn nemur því um tveimur milljörðum króna úr tapi í hagnað.

Tekjur nær tvöfaldast

Tekjur á sumarmánuðunum 2023 voru nær tvöfalt hærri en á sama tímabili árið 2022. Tekjur félagsins fóru úr 63 milljónum dala, 8,6 milljörðum króna, í 116 milljónir dala, tæplega 16 milljarða króna, á sumrinu 2023. Þrátt fyrir yfir 70% aukningu á sætisframboði þá náði félagið að auka einingatekjur á hvern sætiskílómetra (RASK) um sumarið sem er merki um hversu sterkri stöðu félagið hefur náð á sínum lykilmörkuðum á skömmum tíma. PLAY var með 89% sætanýtingu sumarið 2023, sem er mun hærri nýting en hjá helstu samkeppnisaðilum félagsins.

PLAY flutti 537 þúsund farþega í sumar og var með stundvísi upp á 83,9%, sem sýnir að flugreksturinn gekk vel þrátt fyrir að umsvif félagsins hafi aukist töluvert á tímabilinu. Félagið tók inn fjórar nýjar farþegaþotur og bætti við sig 13 áfangastöðum fyrir sumarið.

Hagnaður á þriðja ársfjórðungi

Mat stjórnenda á niðurstöðu þriðja ársfjórðungsins sýnir að rekstrarhagnaður verði um 10 milljónir bandaríkjadala, 1,3 milljarðar íslenskra króna, samanborið við 1,3 milljónir dala, 180 milljónir króna, á þriðja ársfjórðungi árið 2022. Viðsnúningurinn nemur því að minnsta kosti um 1,1 milljörðum króna á milli ára. Þetta mat er byggt á stjórnendauppgjörum á fyrstu tveimur mánuðum þriðja ársfjórðungs og spá um niðurstöðu september.1 Samkvæmt því sér PLAY fram á að skila 4 milljóna bandaríkadala, um 550 milljóna íslenskra króna, hagnaði á þriðja ársfjórðungi.

PLAY áætlar að handbært fé verði um 39 milljónir bandaríkjadala, nærri 5,3 milljarðar íslenskra króna, við lok þriðja ársfjórðungs. Fjárhagsstaða félagsins er því sterk og félagið þarf ekki aukið fé til rekstursins. Félagið áætlar að handbært fé í árslok verði um 28 milljónir dala, 3,8 milljarðar króna, og er því sjóðsstreymi vegna reksturs félagsins í jafnvægi, að teknu tilliti til fjárfestinga við stækkun flota félagsins.

Hátt í fimm milljarða króna viðsnúningur

PLAY býst við að flytja um 1,5 milljónir farþega árið 2023 og að rekstrartap á árinu verði um 10 milljónir bandaríkjadala. Í því samhengi má benda á að félagið skilaði rekstrartapi upp á 44 milljónir bandaríkjadala á árinu 2022, og því nemur viðsnúningur um 34 milljónum bandaríkjadala, eða um 4,6 milljörðum íslenskra króna. Þá gerir félagið ráð fyrir tekjum í ár sem nema um 280 milljónum bandaríkjadala, rúmlega 38 milljörðum íslenskra króna. Kostnaður á hvern sætiskílómetra án eldsneytiskostnaðar (CASK Ex Fuel) er áætlaður um 3,7 sent fyrir allt árið 2023.

Horfur 2024

PLAY áætlar að flytja um 1,8 milljónir farþega á árinu 2024. Áætlaðar tekjur verða um 340 milljónir bandaríkjadala, sem eru um 47 milljarðar íslenskra króna. Félagið áætlar að skila rekstrarhagnaði á árinu 2024. Þá mun kostnaður á hvern sætiskílómetra án eldsneytiskostnaðar (CASK Ex Fuel) einungis hækka í takt við verðbólgu þrátt fyrir um 1% hækkun á kostnaði 2024 vegna breytinga á launakjörum flugfólks sem tilkynnt var um nýlega.

PLAY hefur tryggt sér tvær farþegaþotur fyrir árið 2025 sem mun stækka flotann í 12 þotur af A320neo fjölskyldunni frá Airbus. Mat á frekari aukningu á sætisframboði stendur yfir.

Birgir Jónsson, forstjóri:

„Nú þegar við nálgumst enda sumarvertíðarinnar, horfum við stolt um öxl á frammistöðu PLAY yfir sumarmánuðina og björtum augum á framtíðina. Við sjáum nú sterka fjárhagslega niðurstöðu þar sem tekjurnar nærri tvöfölduðust frá fyrra ári og félagið skilar 12 milljóna bandaríkjadala hagnaði á sama tímabili. Það er viðsnúningur frá tapi upp á 15 milljónir bandaríkjadala frá því í fyrra.



Við gerum ráð fyrir að nánast tvöfalda tekjurnar í þriðja ársfjórðungi og að rekstrarafkoman verði nær tíu sinnum hærri en í fyrra, ásamt því að PLAY skili hagnaði í fyrsta sinn í ársfjórðungi. Sú staðreynd að við höfum náð að halda kostnaði lágum á sama tíma og tekjur á hvern floginn kílómetra aukast, samhliða nærri tvöföldun á sætisframboði, sýnir fram á hversu góðri fótfestu við höfum náð á lykilmörkuðum okkar og gefur okkur byr undir báða vængi fyrir komandi tíma.

Lausafjárstaða okkar er góð og þegar tekið hefur verið tillit til fjárfestinga í stækkun flota er sjóðstreymi í jafnvægi. Þess vegna ætlum við ekki sækja aukið hlutafé við núverandi markaðsaðstæður. Eftir að hafa stækkað hratt á skömmum tíma höfum við náð þeirri stærð sem stefnt var að til að reka skilvirkt og arðbært félag og getum nú einblínt á að auka hagkvæmni enn frekar. Ég vil þakka öllu starfsfólki PLAY fyrir framúrskarandi vinnu og óska þeim til hamingju með þeirra afrek og árangur.”

Fundargögn má finna á






1 Allar fjárhagslegar áætlanir eru byggðar á greiningu stjórnenda á þeim tíma sem þessi kynning var gerð. Slíkar áætlanir eru háðar ýmsum óvissuþáttum, þar á meðal en ekki takmarkað við olíuverð, eftirspurn farþega, samkeppni og alþjóðlegt þjóðhagslegt umhverfi.



Viðhengi



EN
28/09/2023

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings Following PLAY’s announcement earlier today that the company had ceased operations, the company’s Board of Directors submitted a petition to the Reykjavik District Court earlier today for the company to be placed into bankruptcy proceedings. A ruling is expected to be issued tomorrow.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Í framhaldi á tilkynningu PLAY frá því fyrr í dag um að félagið hefði hætt starfsemi þá lagði stjórn félagsins fram beiðni fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur um að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þess er vænst að úrskurður verði kveðinn upp á morgun.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations The Board of Fly Play hf. has decided to cease operations. All of the company’s flights have been canceled. The company will work closely with authorities and employees to implement necessary measures to wind down operations. There are several reasons for this decision, including: the company’s performance has long been weaker than expected, ticket sales have been poor in recent weeks and months following negative media coverage of its operations, and there has been discontent among some employees due to changes in the company’s strategy. Great...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Einingatekjur aldrei hærri í ágúst mánuði

Fly Play hf.: Einingatekjur aldrei hærri í ágúst mánuði PLAY flutti 124.286 farþega í ágúst 2025, samanborið við 187.960 farþega í ágúst 2024. Munurinn á milli ára skýrist fyrst og fremst af i breytingu í nýtingu flugflotans, þar sem færri vélum er flogið í leiðakerfi Play miðað við sama tímabil í fyrra vegna ACMI-leigusamninga við aðra rekstraraðila. Þrátt fyrir minna framboð var sætanýting 89,6%, samanborið við 91,6% í ágúst 2024. Þessi lækkun endurspeglar þær breytingar sem verið er að leiða í gegn hjá Play. Minni áhersla er lögð á tengiflug (VIA) milli Bandaríkjanna og Evrópu, sem y...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch