ISF ISFELAG HF.

Ársuppgjör Ísfélags hf. 2024

Ársuppgjör Ísfélags hf. 2024





Ársreikningur Ísfélags hf. 2024 

Helsta úr starfseminni. 

  • Velta félagsins á síðasta ári var 171 m.USD. Hagnaður ársins var 16 m.USD. 
  • Verri afkoma en árið áður skýrist fyrst og fremst af því að ekki voru stundaðar loðnuveiðar í fyrravetur og makrílveiðar sl. sumar gengu ekki vel.  
  • Veiðar og vinnsla á síld gengu vel. 
  • Sólberg, frystitogari félagsins skilaði góðri afkomu. 
  • Ísfisktogarinn Sigurbjörg kom nýr til landsins sl. sumar og hóf veiðar í ágúst. 
  • Verð hefur hækkað á ferskum og frosnum afurðum félagsins. 
  • Verð á mjöli var ágætt en lýsisverð lækkaði umtalsvert á árinu. 
  • Fiskvinnslu félagsins í Þorlákshöfn var lokað í haust.  
  • Heildarafli skipa félagsins á árinu var um 23.800 tonn af bolfiski og uppsjávarafli skipa félagsins var um 54.800 tonn.  
  • Framleiddar bolfisk- og rækjuafurðir voru um 15.100 tonn, frystar uppsjávarafurðir voru um 17.500 tonn og mjöl og lýsi um 14.400 tonn. 
  • Meðalfjöldi ársverka árið 2024 var 356. 





Helstu niðurstöður á fjórða ársfjórðungi 2024. 

  • Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi námu 50,5 m.USD og rekstrartekjur ársins 2024 voru 171,1 m.USD. 
  • Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 6,5 m.USD  og var hagnaður ársins 2024 16,1 m.USD. 
  • EBITDA framlegð fjórða ársfjórðungs var 15,2 m.USD eða 30,1%. Á árinu 2024 var EBITDA framlegðin 48,2 m.USD eða 28,2%. 
  • Heildareignir námu 778,1 m.USD í lok ársins og var eiginfjárhlutfall 70,8%. 
  • Nettó vaxtaberandi skuldir voru 90,7 m.USD í lok ársins 2024. 



Rekstur. 

Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi námu 50,5 m.USD og á árinu 2024 námu þær 171,1 m.USD samanborið við 194 m.USD á árinu 2023. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 6,5 m.USD og var hagnaður ársins 2024 16,1 m.USD, samanborið við hagnað upp á 38,6 m.USD árið 2023.  

EBITDA framlegð á fjórða ársfjórðungi var 15,2 m.USD eða 30,1%. EBITDA framlegð ársins 2024 var 48,2 m.USD eða 28,2% af rekstrartekjum.  





Efnahagur. 

Heildareignir Ísfélags voru 778,1 m.USD í lok árs 2024, þar af voru fastafjármunir 682,9 m.USD og veltufjármunir 95,1 m.USD. Í árslok 2023 voru heildareignir 804,4 m.USD, þar af voru fastafjármunir 663,4 m.USD og veltufjármunir 141 m.USD. Heildareignir lækkuðu um 26,3 m.USD á árinu 2024. Eigið fé Ísfélags var 550,7 m.USD í lok ársins, en var 554,2 m.USD í lok árs 2023. Eiginfjárhlutfallið var 70,8% í lok árs 2024, en í lok árs 2023 var eiginfjárhlutfallið 68,9%.  

Langtímaskuldir og skuldbindingar voru 188,6 m.USD í lok ársins, en voru 201,3 m.USD í lok árs 2023. Skammtímaskuldir voru 38,7 m.USD í lok árs 2024, en í lok árs 2023 voru þær 48,9 m.USD. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins voru 90,7 m.USD í lok ársins 2024 en voru í árslok 2023, 98,5 m.USD.  

Sjóðstreymi. 

Á árinu 2024 var handbært fé frá rekstri 60,7 m.USD. Fjárfestingarhreyfingar ársins voru neikvæðar um 40,3 m.USD. Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 27,3 m.USD. Lækkun á handbæru fé, á árinu 2024 var 6,8 m.USD og var handbært fé í lok ársins 36,1 m.USD. 

Meginniðurstöður ársins 2024 í íslenskum krónum. 

Þegar helstu niðurstöður úr rekstrarreikningi ársins eru færðar yfir í íslenskar krónur á meðalgengi ársins 2024 (137,93) voru rekstrartekjur félagsins 23,6 milljarðar króna, rekstrarhagnaður 4,5 milljarðar króna, hagnaður eftir skatta 2,2 milljarðar króna og EBITDA 6,6 milljarðar króna.  

Sé staða á efnahag félagsins í lok ársins 2024, færð í íslenskar krónur á lokagengi ársins (138,2), eru heildareignir 107,5 milljarðar króna, fastafjármunir 94,4 milljarðar króna og veltufjármunir 13,1 milljarður króna. Eigið fé í lok árs 2024 var 76,1 milljarður króna og skuldir og skuldbindingar 31,4 milljarðar króna.  

Samþykkt ársreiknings  

Uppgjör ársins 2024 var samþykkt á stjórnarfundi Ísfélags hf. 27. mars 2025. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS- International Financial Reporting Standards). 

Kynningarfundur 27. mars 2025 

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn í vefstreymi fimmtudaginn 27. mars klukkan 16:00. Streymið verður aðgengilegt á vefsíðu Ísfélagsins . Hægt er að senda spurningar á netfangið  

Frá Stefáni Friðrikssyni forstjóra 

Töluverður samdráttur varð í rekstri félagsins á árinu 2024 sem skýrist að mestu leyti vegna aflabrests í loðnu á síðastliðnum vetri og lélegrar makrílveiði í sumar. Nauðsynlegt er að rannsaka betur loðnustofninn sem er svo mikilvægur í vistkerfi hafsins hér við land og reyna að fá svör við því hvers vegna hann skilar sér ekki betur af fjalli ef svo má að orði komast. Horfurnar eru aftur á móti góðar fyrir næstu vetrarvertíð og miklar líkur á upphafskvóta en sagan segir okkur, því miður, að þar sé ekki á vísan að róa. 

Veiðar og vinnsla á síld gengu vel á árinu.  

Góð eftirspurn var á mörkuðum fyrir afurðir félagsins og verð á frosnum og ferskum afurðum hækkaði. Verð á fiskimjöli var ágætt á árinu en verð á lýsi lækkaði.  

Frystitogarinn Sólberg skilaði góðri afkomu á árinu og var aflahæsta bolfiskskip landsins. Sigurbjörg, nýr ísfisktogari félagsins, hóf veiðar um miðjan ágúst en skipið leysir þrjú eldri skip af hólmi. 

Fiskvinnslu félagins í Þorlákshöfn var lokað í haust. Ástæðurnar eru, eins og áður hefur komið fram, annars vegar að ekki eru nægar aflaheimildir fyrir hendi og hins vegar aflabrestur í humarveiðum.  

Afli skipa félagsins var um 78.500 tonn og framleiddar afurðir voru um 32.600 tonn. Mjöl- og lýsisframleiðsla var tæp 14.400 tonn. 

Umtalsverðar fjárfestingar voru á árinu.  Smíði ísfisktogarans Sigurbjargar lauk í Tyrklandi, félagið keypti Pathway, uppsjávarskip frá Skotlandi, sem afhent verður í maí á þessu ári. Þá hófst undirbúningur að stækkun á fiskimjölsverksmiðju félagsins í Vestmannaeyjum og bygging nýrrar frystigeymslu á Þórshöfn. 

Félagið undirritaði lánasamning að fjárhæð 220 milljónir evra við hóp banka í lok janúar á þessu ári. Lánið er til fimm ára með 25 ára afborgunarferli og var nýtt til að endurfjármagna öll vaxtaberandi lán og styrkja lausafjárstöðu félagsins og aðgang að lánsfjármögnun í framtíðinni.  

Innlendur kostnaður hefur hækkað umtalsvert, þ.m.t. laun og orkukostnaður. Hækkun kolefnisgjalds um 60% um síðustu áramót er sérstakt umhugsunarefni í ljósi þess að ekki eru aðrar leiðir færar en að notast við jarðefnaeldsneyti í rekstrinum og hækkun þessa sérstaka skatts því enginn hvati til orkuskipta eins og var og er tilgangur laganna sem skattlagningin byggist á. Fyrir liggja einnig áform um innleiðingu reglna um breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir, þar sem til stendur að útvíkka það enn frekar (ETS2). Slík áform munu auka kostnað við framleiðslu á fiskimjöli og lýsi. Er því verið að auka á kostnað við framleiðslu, án þess að aðgengi að raforku til reksturs sé tryggt. 

Stjórnvöld hafa lagt fram frumvarp um gríðarlega hækkun á veiðigjöldum þrátt fyrir að ljóst sé að afkoma greinarinnar megi ekki við frekari kostnaðarhækkunum þegar tekið er tillit til nauðsynlegra fjárfestinga og eðlilegrar afkomu greinarinnar. Engar tilraunir hafa verið gerðar til að skoða áhrif þessara skattahækkana á  atvinnugreinina og samkeppnishæfni hennar. Hærri skattar á fyrirtæki minnka möguleika þeirra á að fjárfesta í betri rekstri og draga úr getu fyrirtækja til að gera betur. Þarna eru því áform að slátra mjólkurkúnni. 

Fyrir liggur að sjávarútvegsráðherra ætlar að fjölga strandveiðidögum upp í 48. Því hefur verð heitið að það verði gert án þess að skerða heimildir annarra útgerðaraðila. Gangi þessi áform eftir mun þorskaflinn innan fárra ára aukast langt fram úr veiðiráðgjöfinni og það er ekki farsælt ef markmiðum um sjálfbærar veiðar er varpað fyrir róða. 

Aðalfundur  

Aðalfundur Ísfélags hf. verður haldinn miðvikudaginn 23. apríl 2025 klukkan 16:00 á Tangagötu 1 í Vestmannaeyjum og verður einnig boðið upp á rafræna þátttöku. Nánari upplýsingar um aðalfundinn má finna á heimasíðu félagsins     

Fjárhagsdagatal  

Aðalfundur 2025 – 23. apríl 2025. 

Birting uppgjörs Q1 2024 – 27. maí 2025. 

Birting uppgjörs Q2 2024 – 29. ágúst 2025. 

Birting uppgjörs Q3 2024 – 28. nóvember 2025. 





Nánari upplýsingar veitir Stefán Friðriksson, forstjóri. 











Viðhengi



EN
27/03/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on ISFELAG HF.

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Niðurstöður aðalfundar Ísfélags hf. 24. apríl 2025

Leiðrétting: Niðurstöður aðalfundar Ísfélags hf. 24. apríl 2025 Leiðrétting: Í tilkynningunni var tilgreindur rangur arður á hlut í „Tillögu um greiðslu arðs“. Tilgreint var 2,558 kr. á hlut, en hið rétta er 2,568 kr. á hlut. Uppfærð tilkynning um samþykkt aðalfundar um greiðslu arðs hljóðar því svo: Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 verði 2,568 kr. á hlut eða um 2.100.000 milljónir kr. Arðurinn verður greiddur 16. maí 2025. Réttur hluthafa til arðgreiðslu miðast við hlutaskrá 25. apríl 2025 (viðmiðunardagur).

 PRESS RELEASE

Ísfélag hf. – Niðurstöður aðalfundar 23. apríl 2025

Ísfélag hf. – Niðurstöður aðalfundar 23. apríl 2025 Aðalfundur Ísfélags hf. var haldinn í að Tangagötu 1 í Vestmannaeyjum og rafrænt þann 23. apríl 2025. Mætt var fyrir 87,14 % atkvæða. Hér verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum fundarins: Ársreikningur Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins. Tillaga um greiðslu arðs Samþykkt var að arðgreiðsla á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 verði 2,558 kr. á hlut eða 2.100.000 milljónir kr. Arðurinn verður greiddur 16. maí 2025. Réttur hluthafa til arðgreiðslu miðast við hlutaskrá 25. apríl 2025. Tillaga um starfskjarastefnu Tillaga að ...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Ísfélags hf. 2025 - Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar ...

Aðalfundur Ísfélags hf. 2025 - Frambjóðendur til stjórnar, endanlegar tillögur og dagskrá   Fundurinn er haldinn rafrænt og á Tangagötu 1 Vestmannaeyjum þann 23.  apríl 2025 kl. 16.  Meðfylgjandi eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar félagsins sem eru í kjöri á aðalfundinum 23. apríl 2024. Framboðsfrestur er útrunninn. Samkvæmt samþykktum félagsins kýs aðalfundur allt að sjö menn í stjórn. Fimm einstaklingar eru í kjöri til aðalstjórnar og er því sjálfkjörið í stjórn.  Í kjöri til aðalstjórnar eru:  Einar Sigurðsson  Guðbjörg Matthíasdóttir  Gunnar Sigvaldason  Steinunn H. M...

 PRESS RELEASE

Ársuppgjör Ísfélags hf. 2024

Ársuppgjör Ísfélags hf. 2024 Ársreikningur Ísfélags hf. 2024  Helsta úr starfseminni.  Velta félagsins á síðasta ári var 171 m.USD. Hagnaður ársins var 16 m.USD.  Verri afkoma en árið áður skýrist fyrst og fremst af því að ekki voru stundaðar loðnuveiðar í fyrravetur og makrílveiðar sl. sumar gengu ekki vel.   Veiðar og vinnsla á síld gengu vel.  Sólberg, frystitogari félagsins skilaði góðri afkomu.  Ísfisktogarinn Sigurbjörg kom nýr til landsins sl. sumar og hóf veiðar í ágúst.  Verð hefur hækkað á ferskum og frosnum afurðum félagsins.  Verð á mjöli var ágætt en lýs...

 PRESS RELEASE

Ísfélag hf. birtir ársuppgjör 2024 á fimmtudaginn kemur, þann 27. mars...

Ísfélag hf. birtir ársuppgjör 2024 á fimmtudaginn kemur, þann 27. mars 2025 eftir lokun markaða. Fjárfestakynning verður haldin sama dag Ísfélag hf. birtir ársuppgjör fyrir árið 2024 eftir lokun markaða á fimmtudaginn, 27. mars 2025.  Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 16:00 og verður hún eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á .   Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið .  Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Ísfélagsins, .   Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að kynningu lokinni.  ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch