ISF ISFELAG HF.

Ísfélag hf.: Breyting á viðskiptavakt

Ísfélag hf.: Breyting á viðskiptavakt

Ísfélag hf. og Arion banki hf. hafa gert breytingar á fyrirliggjandi samningi um viðskiptavakt fyrir hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Samkvæmt samningnum skal Arion banki leggja fram, á hverjum viðskiptadegi Kauphallarinnar, bæði reglubundin og fyrirsjáanleg kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar, bæði áður en aðalmarkaður hennar opnar og á meðan viðskipti eiga sér þar stað.

Í samningnum er nú kveðið á um að Arion banki skuli leggja fram kaup- og sölutilboð sem varða að lágmarki 90.000 hluti í félaginu, á gengi sem Arion banki ákveður. Tilboðin skulu vera í tveimur pörtum þannig að verðbil kaup- og sölutilboða sem varða 85.500 hluti („A partur“) skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki lægra en 1,45%. Verðbil kaup- og sölutilboða sem varða 4.500 hluti („B partur“) skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni, á þann veg að verðbil verði ekki hærra en 1,50%. Þó skal Arion banka vera heimilt að setja fram kaup- og sölutilboð í bæði A part og B part með lægra verðbili en að framan greinir, t.d. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.

Þá er Arion banka ekki skylt til að leggja fram nýtt kaup- og sölutilboð fyrr en kaup- og sölutilboð í bæði A parti og B parti hafa verið tekin að fullu eða þau felld niður í heild.

Eigi Arion banki innan sama viðskiptadags viðskipti með hluti í félaginu, sem fara í gegnum veltubók Arion banka (markaðsvakt bankans), sem nema samtals 80 m.kr að markaðsvirði eða meira, falla niður framangreindar skyldur Arion banka um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting á hlutabréfum útgefanda innan viðskiptadags er umfram 5% er Arion banka heimilt að tvöfalda framangreind verðbil og ef verðbreyting á hlutabréfunum er umfram 10% er Arion banka heimilt að þrefalda þau.

Breytingarnar taka gildi frá og með 16. desember 2025.

Nánari upplýsingar veitir Unnar Már Pétursson, fjármálastjóri Ísfélags hf., í síma 488 1100.



EN
15/12/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on ISFELAG HF.

 PRESS RELEASE

Ársuppgjör Ísfélags hf. árið 2025

Ársuppgjör Ísfélags hf. árið 2025 Ársuppgjör Ísfélags hf. árið 2025 Helsta úr starfseminni. Rekstrartekjur ársins 2025 voru 214 m.USD sem eru 43 m.USD hærri tekjur en árið 2024. Hagnaður ársins 2025 var 21,5 m.USD, samanborið við hagnað upp á 16,1 m.USD árið 2024.Verð á þorski, ýsu og uppsjávarafurðum var gott og makrílveiðar gengu vel sl. sumar.Veiðar og vinnsla gengu vel á árinu og Sólberg, frystitogari félagsins, fiskaði vel og skilaði góðri afkomu.Félagið fjárfesti umtalsvert til lands og sjávar.Heildarlánasamningur var gerður við hóp banka í upphafi ársins.Ísfélagið tók um mitt sumar...

 PRESS RELEASE

Ísfélag hf. birtir ársuppgjör 2025 á miðvikudaginn 25. mars 2026, efti...

Ísfélag hf. birtir ársuppgjör 2025 á miðvikudaginn 25. mars 2026, eftir lokun markaða. Fjárfestakynning verður haldin sama dag. Ísfélag hf. birtir ársuppgjör fyrir árið 2025 eftir lokun markaða á miðvikudaginn, 25. mars.  Fjárfestakynning verður þann sama dag kl. 16:00 og verður hún eingöngu send út á vefstreymi. Vefstreymið má nálgast á .    Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir og á meðan á fundi stendur á netfangið .   Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Ísfélagsins, .    Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að kynningu lokinni.   Nánari ...

 PRESS RELEASE

Breytingar á framkvæmdastjórn Ísfélags hf.

Breytingar á framkvæmdastjórn Ísfélags hf. Jón Páll Kristófersson, sölu- og markaðsstjóri Ísfélags hf. hefur tekið sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Jón Páll Kristófersson er fæddur árið 1971.  Jón Páll er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri.  Hann var rekstrarstjóri hjá Ramma hf. og síðar Ísfélagi hf. í Þorlákshöfn frá árinu 2000 til 2024.  Jón Páll á beinan eignarhlut í eigin nafni alls 958.140 hluti, eða sem svarar til 0,12% af skráðu hlutafé félagsins.  Enn fremur er Jón Páll eigandi alls hlutafjár í Rúnu ehf. sem á 360.000 hluti í félaginu, eða sem svarar til 0,04% af skráðu...

 PRESS RELEASE

Ísfélag hf.: Breyting á viðskiptavakt

Ísfélag hf.: Breyting á viðskiptavakt Ísfélag hf. og Arion banki hf. hafa gert breytingar á fyrirliggjandi samningi um viðskiptavakt fyrir hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Samkvæmt samningnum skal Arion banki leggja fram, á hverjum viðskiptadegi Kauphallarinnar, bæði reglubundin og fyrirsjáanleg kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar, bæði áður en aðalmarkaður hennar opnar og á meðan viðskipti eiga sér þar stað. Í samningnum er nú kveðið á um að Arion banki skuli leggja fram kaup- og sölutilboð sem varða að lágmarki 90.000 hluti í félag...

 PRESS RELEASE

Uppgjör Ísfélags hf. á þriðja ársfjórðungi 2025

Uppgjör Ísfélags hf. á þriðja ársfjórðungi 2025 Frá Stefáni Friðrikssyni forstjóra:   Afkoma Ísfélagsins á þriðja ársfjórðungi var ágæt og skýrist einkum af því að annars vegar gengu veiðar og vinnsla á makríl mjög vel og hins vegar aflaði Sólberg ÓF 1, frystitogari félagsins, vel á tímabilinu. Einnig hefur verð á helstu afurðum félagsins verið gott og sala afurða gengið vel á árinu. Hjá fyrirtækjum sem stunda uppsjávarvinnslu sveiflast birgðastaðan oft mikið milli vertíða og í lok þriðja ársfjórðungs var talsvert til af birgðum í uppsjávarfiski.   Félagið hefur fjárfest mikið á yfirstand...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch