Kaldalón hf.: Lækkun hlutafjár
Á aðalfundi Kaldalóns hf. hinn 3. apríl sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins. Lækkunin nemur krónum 337.501.390 eða 33.750.139 hlutum þar sem hver hlutur er að nafnvirði tíu (10) krónur og tekur til eigin hluta sem félagið hefur eignast með kaupum samkvæmt endurkaupaáætlunum.
Eftir lækkunina verður hlutafé félagsins samtals kr. 10.858.183.440. Hlutaféð skiptist í 1.085.818.344 hluti, hver að nafnvirði tíu (10) krónur.
Beiðni hefur verið send á Nasdaq Iceland og Nasdaq CSD og mun lækkunin verða framkvæmd mánudaginn 2. júní 2025.
